Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1986, Blaðsíða 30

Æskan - 01.05.1986, Blaðsíða 30
Gettu nú Kæra Æska! Takk fyrir gott blað. Þið mættuð þó hafa fleiri krossgátur. En ég sendi ykkur gátu. Hún er svona: Dugnaðarforkur er hann. Annars veist þú ekkert enn. Vandaðu þig nú: ímyndaðu þér tónlistarmann. Dæmalaust ertu skýr ef þú getur svar- að strax. Byrjum nú aftur. Okkur líkar lögin hans. vWe love him sometimes“ Islenskur er hann ekki. En nú skaltu lesa nafnið úr fyrstu há- stöfunum — (Í=I)! HH Bréf frá Þórshöfn Hæ, kæri Æskupóstur! Mig langar til að segja frá litla þorpinu okkar, Þórshöfn. Hér eru 4-500 íbú- ar. Hér er frystihús, kaupfélag, Gullu- búð, heilsugæslustöð, heilsurækt, tveir söluskálar, sparisjóður, pósthús, leikvöllur fyrir börn, bókasafn og margt fleira. Já, ekki má ég gleyma skólanum. Þar er ágætt félagslíf en mætti þó vera enn betra. Stundum eru „diskótek“ — stundum förum við í bíó og margir æfa íþróttir, t.d. knatt- spyrnu og blak. Hér starfar líka skátafélag. Að lokum þakka ég frábært blað en bið þó um enn fleiri nöfn pennavina. Svo hvet ég alla íslendinga til að koma hingað að skoða þetta frábæra þorp! Ein að norðan Að selja bréfdúfur Kæra Æska! Þú ert mjög gott blað en þú mættir samt birta veggmyndir af Tínu Turner og Agnethu Fáltskog. Ég ætla að segja þér tvo brandara: — Segðu mér, hvað starfar þú? - Égásjöbréfdúfuroglifiáþeim. — Varla hefur þú miklar tekjur af því. . . — Jú, jú. Ég sel þær á hverjum degi fyrir 500 kr. hverja og þær koma allar heim að kvöldi! Maður nokkur vann við að þvo glugga og féll úr háum stiga niður á gangstétt. Sem betur fór meiddist hann ekki. Múgur og margmenni safn- aðist saman til að huga að hvort hann væri ómeiddur. Lögreglumaður kom á vettvang og spurði: - Hvaðgengurhérá?! - Éghefekkihugmyndumþað, svaraði sá sem datt. - Eg er alveg nýkominn. Anna Meira af landsbyggðinni Kæri Æskupóstur! Ég er í 7. bekk í Gagnfræðaskóla Nes- kaupstaðar sem reyndar heitir nú Verkmenntaskóli Austurlands. í skól- anum er félagsmiðstöð sem ber það virðulega nafn Skálkaskjóí. Hún er opin þrisvar í viku. Þar er m.a. starf- ræktur ljósmyndaklúbbur og fyrirhug' að er að stofna borðtennisklúbb. Mig langar til að spyrja nokkurra spurninga: 1. Má senda lausn við fleiri en einni þraut í sama umslagi? Er ekki hæg* að leyfa þeim sem fá verðlaun að velja þau? 2. Gætuð þið haft tölvuþátt og skák- þátt í blaðinu? 3. Viljið þið skrifa meira um málefni krakka utan Reykjavíkursvæð- isins? SVÖR: 1. Já - en skrifaðu hverja lausn á sitt blað og merktu með nafni og heiffl' ilisfangi. Segðu alltaf til um aldur svo að við getum valið verðlaun yiö hæfi. Við höfum yfirleitt þann hátt á en stundum er verðlaunahöfum sjálfum gefinn kostur á að velja. 2. Það höfum við einmitt hugleitt og vonandi líður ekki á löngu uns af því verður. 3. Já! ÆSKUÞÖS T URINN 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.