Æskan - 01.06.1994, Síða 48
Stefnir þú að frekara söng- eða
tónlistarnámi?
Ég er í brjálæðislegu söng- og
tónlistarnámi með allri þessari spila-
mennsku - en það væri samt gaman
að fara í tíma til einhvers söngkenn-
ara sem skammaði mann á réttum
stöðum.
Hvað vildir þú helst vera?
Drottning - sem þyrfti ekki að
gera neitt nema fara í hárgreiðslu all-
an daginn.
í hvaða skólum hefur þú verið?
Vesturbæjarskóla (sem þá var í
gamla Stýrimannaskólanum),
Hagaskóla (sem mér leið ekki vel
í) og MH (sem yndislegt var að vera í
og þar byrjaði þetta allt saman).
Hver fannst þér skemmtilegasta
námsgreinin?
Mér fannst skemmtilegast í mat-
reiðslu-, smíði- og saumatímum.
Hefur þú tekið mikinn þátt í fé-
lagsstarfi - í og utan skóla?
Ég var aðal-driffjöðrin í öllu því fé-
lagsstarfi sem ég mögulega gat
komist í, ritnefnd skólablaðsins, leik-
listarfélögum, kór, myndbanda-
klúbbi, skemmtinefnd og sem aug-
lýsingafulltrúi en samt gætti ég mín
alltaf á að sækjast aldrei eftir mestu
ábyrgðarstöðunum, t.d. að verða
skólastjórnarfulltrúi eða forseti skóla-
félagsins, því að á þeim vígstöðvum
gerist aldrei neitt - eins og flestir vita.
Stundar þú íþróttir?
Ég er á móti íþróttum. Ég er „anti-
sportisti". Næsta spurning, takk!
Hvert er helsta áhugamál þitt
annað en tónlist?
Kvikmyndir... og veiðiferðir.
Eftirlætis-
tónlistarmaður/menn: Burt
Bacharach, Kate Bush, Björk, Dusty
Springfield, Karen Carpenter o.fl.
hljómsveit: HAM
tónverk: „Moments in Love“ eftir
„Art of Noise“, „0, Superman" eftir
Laurie Anderson - o.fl.
einstakt lag: „Walk on By“ eftir
Burt Bacharach.
leikarar á sviði - íslenskir: Edda
Björgvins, Ólafía Hrönn /erlendir:
Chita Rivera
leikarar í kvikmyndum - ís-
lenskir: Allir sem léku í Morðsögu /
erlendir: Chesty Morgan.
rithöfundur: Auður Haralds
Ijóðskáld: Böðvar Björnsson,
Davíð Stefánsson
bók: „The Encyclopedia of Bad
Taste"
hljóðvarpsmaður: Gerður G.
Bjarklind
sjónvarpsmaður: Sigursteinn
Másson
þáttur í Ijósvakamiðlum: Sætt
og sóðalegt
persóna í skáldsögu: Lína
langsokkur
dýr: Kettir
matur: Thai-matur.
Hvaða hljómsveitir þótti þér
bestar þegar þú varst á barns- og
unglingsárum?
Mér fannst Eurythmics, WHAMI,
Janet Jackson og Madonna algjört
æði! Einnig Five Star, Human
League, Tracy Ullman og Boy Geor-
ge m/Culture Club.
Hvaða bækur fannst þér þá
skemmtilegast að lesa?
Ástrík, Hin fjögur fræknu, Línu
Langsokk og allt eftir Auði Haralds.
Hefur þú ferðast víða?
Sem betur fer hef ég getað ferð-
ast víða. Ég hef komið til Danmerk-
ur, Bretlands, Svíþjóðar, Spánar,
Ítalíu, Ungverjalands, Hollands og
Bandaríkjanna.
Hvaða staður þykir þér falleg-
astur - á íslandi - erlendis?
Maður hefur svo sem séð marga
fallega staði erlendis en ísland er
jafn-fallegasta land sem ég hef séð.
Ég hef fengið það á hreint á þessum
ferðalögum með Milljónamæringun-
um.
Hvert langar þig mest til að
ferðast?
Meira um Bandaríkin.
Hvað hefur þér þótt sérstæðast
á ferðum þínum?
Liðið sem maður hitti.
Hvaða árangur þinn hefur þú
verið ánægðastur með?
Leik og söng í „Rocky Horror",
Stuð-plötuna, útvarpsþættina Sætt
og sóðalegt, og lagið „The Look of
Love“ á Milljónamæringaplötunni.
Hverja metur þú besta kosti
fólks?
Þegar það mætir á böllin og
kaupir plöturnar.
Hvað þykir þér síst í fari fólks?
Þegar það veit að mér þykir vænt
um það en þarf endilega að heyra
mig segja þeim það, hvað sem það
kostar!
Að lokum fylgir tæmandi listi
yfir allar þær plötur sem Páll Ósk-
ar hefur sungið á eða tekið þátt í:
Söngævintýrið, Hans og
Gréta (1979, Geimsteinn);
Áhöfnin á Halastjörnunni,
Eins og skot, lag: Sonur sjó-
mannsins (1980, Geimsteinn);
Við jólatréð, safnplata með
diskó-jólalögum, útsetningar,
Gunnar Þórðarson (1981, Fálk-
inn);
Stígvélaði kötturinn, (1983,
Geimsteinn);
Áhöfnin á Halastjörnunni, Ég
kveðju sendi-herra, lög: Til ömmu
og Blindi drengurinn (1982,
Geimsteinn);
Gúmmí-Tarsan, úr samnefnd-
um söngleik, uppfærsla Leikfé-
lags Kópavogs (1982, L.K.);
Og það varst þú, lög: Vasa-
peningurinn, Hringrásin og í
bljúgri bæn (1983, Skálholt);
Rocky Horror, úr samnefnd-
um söngleik í flutningi Leikfélags
MH (1991, P.S.músík);
Minningar, safnplata með
ýmsum flytjendum, lög:
Yndislegt líf, Þrek og tár, Til
eru fræ (1991, P.S.músík);
Vikivaki, safnplata með ís-
lenskum þjóðlögum, m.a. lagið,
Kvölda tekur (1992, Nýmæli sf.);
Páll Óskar - Stuð, fyrsta
„sóló“platan. Lög t.a.m.: Ljúfa líf,
TF-Stuð, Stanslaust stuð (1993,
Smekkleysa);
Páll Óskar og Milljónamær-
ingarnir, Milljón á mann. Meðal
laga: „Speak up Marnbo", „Negro
José“, „The Look of Love (1994,
Smekkleysa).
4 8 Æ S K A N