Æskan - 01.06.1994, Page 54
Pósthólf 523,
121 Reykjavík.
Umsjón: Sigurborg
Sveinbjörnsdóttir.
FITA - OC BÓLUR
ÁTUNGU
Kæri Æskuvandi!
1. Hvað á að gera til að
losna við fitu af lærum og
maga?
2. Hvernig er hægt að losa
sig við bólur sem eru aftast á
tungunni?
Hakeem.
Svar:
1. Ég held að þú þurfir
ekki að hafa áhyggjur af
vexti þínum. Stúlkur á þínum
aldri eru að vaxa. Það er
gott að þú skulir stunda í-
þróttir. Haltu því áfram! En
ég er ekki alveg eins ánægð
með að þú skulir reykja.
Best væri að þú legðir þann
ósið af áður en þú verður
háð tóbakinu.
2. Efri hluti tungunnar er
settur smáum totum. Það
eru bragðlaukarnir. Ég átta
mig ekki nógu vel á hvort
það eru þeir sem eru bólgn-
ir. Flestir sjúkdómar í tung-
unni eru minniháttar og
læknast fljótt. En rétt er að
leita læknis til að fá úr því
skorið hvað um er að ræða.
Sumir hafa fæðuofnæmi
sem kemur fram á tungu. Þá
roðnar hún, bólgnar og
verður aum.
Vonandi verður þú ein-
hvers vísari. Þakka þér fyrir
bréfið.
VINKONULEIT
Sæl, Sigurborg!
Ég hef lesið Æskuvandann
frá því að ég varð áskrifandi
1992. En ég hef ekki fundið
ráð við vanda mínum.
Þegar ég var sex ára (ég er
tólf núna) eignaðist ég vin-
konu. Köllum hana KM. Hún
varð síðar besta vinkona mín.
En hún fluttist til Svíþjóðar.
Næstu 2-3 árin saknaði ég
hennar svo mikið að ég grét
stundum þegar ég hugsaði um
hana. Samt gleymdi ég henni
smám saman.
Fyrir stuttu sá ég konu (
sundi. Hún minnti mig á móð-
ur KM. Þegar ég kom heim
hugsaði ég ekki meira um það.
En í morgun las ég gömul bréf
frá henni. Nú veit ég ekki hvar
hún dvelst en ég sakna henn-
ar.
Ég er sæmilega vinsæl og á
margar vinkonur en hún er
einhvern veginn alltaf í huga
mér. Nú spyr ég hvernig ég
geti komist að því hvar hún er.
Ég þekki ekki ömmu hennar
eða afa og veit ekkert um þau.
Ég hef skrifað bréf þangað
sem hún átti heima. Get ég
hringt eitthvað til að afla upp-
lýsinga.
Vertu svo góð að hjálpa
mér!
Grýla.
Svar:
Þakka þér fyrir bréfið. Ég
skil vel að þig langi til að
hitta eða heyra frá vinkonu
þinni. Enn er von til þess þó
að langt sé um liðið. Hugs-
anlegt er að Hagstofa ís-
lands, þjóðskrárdeild, geti
hjálpað þér. En líklega þarftu
að gefa upp fullt nafn henn-
ar, fæðingardag og heimilis-
fang, þ.e.a.s. þar sem þau
áttu heima áður en þau flutt-
ust til Svíþjóðar. Gangi þér
vel!
ALVARLECT MÁL
OC UNCLINCA-
BÓLUR
Svar til „Hræðslu“.
Það er alvarlegt mál sem
þú lýsir og þarf að leysa í
samvinnu við foreldra þína.
Reyndu að tala máli þínu við
móður þína fyrst í stað. Út-
skýrðu fyrir henni reynslu
þína og áhyggjur.
Þú minnist á virðingu.
Hún er mjög mikilvæg. En
virðingu ávinnur maður sér
vegna góðra verka eða
framkomu. Það er talið sjálf-
sagt að börn beri virðingu
fyrir fullorðnum en stundum
hegðar fullorðið fólk sér
þannig að börn geta ekki
borið virðingu fyrir því.
Ef góð samvinnu tekst
með þér og báðum foreldr-
um þínum veit ég að þú átt
eftir að líta framtíðina bjart-
ari augum.
Það síðara, sem þú nefn-
ir, „unglingabólur", er
vandamál margra unglinga. í
flestum tilvikum gengur það
yfir á stuttum tíma. Ástæðan
fyrir því að margir unglingar
fá bólur eru þær hormóna-
breytingar sem verða við
upphaf kynþroskans. Breyt-
ingarnar valda aukinni fram-
leiðslu fitukirtla og á yfir-
borðs-húðfrumum. Ung-
lingabólur eru ekki alveg
eins algengar hjá stúlkum
og piltum - en stúlkur fá
einkum bólur þegar þær
hafa blæðingar.
Margir unglingar taka
þetta mjög nærri sér. En það
borgar sig ekki að kreista
bólur í andliti vegna mögu-
leika á að sýking berist í
þær.
Nokkrar tegundir bólu-
lyfja er hægt að kaupa án
lyfseðils. Þau geta hjálpað í
sumum tilfellum. Hafir þú
gelgjubólur á háu stigi
skaltu leita til læknis. Hann
gefur þá væntanlega ávísun
á sérstök lyf. Gangi þér vel!
HÁRVÖXTUR-
HÁRLOS
Kæra Sigurborg!
Ég er 13 ára og á í dálitlum
vanda. Ég er komin með mikið
hár undir handarkrikunum.
Það er mjög subbulegt og
Ijótt. Ég kann ekki að raka það
og þori ekki að spyrja neinn. í
þokkabót er ég með mikið
hárlos.
Ég hef lengi ætlað að skrifa
en læt loksins verða af því. Ég
hef lesið mörg bréf en aldrei
séð neitt líkt þessu.
Hvað lestu úr skriftinni?
Fjóla frænka.
Svar:
Umhirða hárs er mjög
mikilvæg. Margar konur fjar-
lægja reglulega hár af á-
kveðnum svæðum ef það er
talið spilla útliti, einkum ef
það er dökkt. Flestar að-
ferðir til þess eru einfaldar
og sársaukalausar. Algeng-
ast er að raka sig. Það hent-
ar flestum hlutum líkamans
vel. Háreyðandi krem hentar
alls staðar vel en getur þó
ert viðkvæma húð.
Ég ráðlegg þér að fá til-
sögn hjá móður þinni í fyrsta
skipti, hún hefur áreiðanlega
reynslu á þessu sviði.
Ég hefði þurft að fá betri
upplýsingar um hárlosið en
þú gefur, hve lengi þetta
hefur varað og hve mikið
það hefur verið. Ég vil því
ráðleggja þér að hafa sam-
band við heimilislækni þinn
og fá ráðleggingar frá hon-
um,
Skriftin er snyrtileg og
skýr. Kær kveðja.
5 4 Æ S K A N