Skírnir - 01.04.1917, Blaðsíða 43
Í50
ísland. og Norðurlönd.
[Skirnir
að gaghi. Sá alþjóðablær, sem er á smiðnm flestra ís-
lenzkra listamanna á þessum sviðum er að kenna dönsk-
um áhrifum. Dönsk byggingarlist hefir á Islandi reist sér
ævarandi minnisvarða. Þegar spurt er að því hverjar
séu fallegustu opinberu byggingarnar í Reykjavik, verður
svarið: Alþingishúsið og Landsbókasafnið, bæði bygð eftir
uppdráttum danskra byggingameistara, Alþingishúsið eftir
Meldal, hitt eftir Magdahl Nielsen.
Aftur á móti i skáldskap eru áhrifln frá Danmörku
minni en við mætti búast. Þó má finna þau hjá einstaka
xithöfundi, og einkum má benda á það með vissu, að
hreyfing sú sem Georg Brandes vakti í Danmörku á sín-
um tíma hefir náð til íslenzkra bókmenta, eins og líka má
benda á áhrif frá Drachmann og H. C. Andersen.
Þegar svo er litið á þjóðlífið og verklegu sviðin má
finna margs lconar áhrif frá Danmörku. Menningin í
kaupstöðunum okkar er að miklu lcyti dönsk. í verzl-
unar- og iðnarstéttunum okkar er fjöldi i'ólks sem hefir
mentast í Kaupmannahöfn og flutt danska siði með sér,
og að auk allmargar danskar fjölskyldur, sem hafa haft
talsverð áhrif á lifið í bæjunum. Heimili efnaðra borgara
fá oft á sig likt snið og sams konar heimili í dönskum
bæjum. Auðvitað er þetta eins konar millibilsástand —
eftir öllu að dæma verður lifið í íslenzku bæjunum með
alíslenzkum blæ þegar nokkrar kynslóðir eru liðnar. Upp
til sveita eru dönsku áhrifin miklu minni. En þó má þar
líka benda á einstöku greinar, þar sem við höfum lært
mikið af Dönum. Þannig eru rjómabúin og sláturfélögin
dönsk að uppruna, og svo virðist sem þau ætli að verða
til mestu þjóðþrifa efnalega eins á íslandi snm í Dan-
mörku, þó stendur járnbrautarskorturinn þeim enn mjög
fyrir þrifum. Það leiðir af pólitísku sambandi landanna,
að íslendingar ávalt gefa vel gaum að fyrirkomulagi
danskra stofnana, og oft taka þær sér til fyrirmyndar,
þegar eitthvað nýtt á að setja á stofn, og meðan Danir
standa eius í fremstu röð þjóðanna og þeir nú gera í öll-
sum framförum og hagsýni i þjóðmálum, þá verður það