Skírnir - 01.04.1917, Blaðsíða 82
Skirnir]
Dóinnrinn.
1S9
ósatt um sál mína. Þú segir, að sál mín hafi verið fögur
og björt og að hvergi hafi séð blett á henni. Þetta er ósatt.
— Eg hefi engan blett séð á sál yðar hátignar,
hvernig sem eg hefi skoðað hana í sálarskuggsjánni.
— Blindi maður! svaraði konungur. Þú segir, að vilji
minn hafi verið göfugur og skær, eins og sólargeislinn.
Þú segir, að eg hafi hrygst með hryggum og glaðst með
glöðum. Þú segir, að eg hafi hugsað gott um óvini mína.
Þetta er lygi.
— Þetta stendur skrifað í bók lífsins, og eg sé í sál-
arskuggsjánni, að þannig hefir sál yðar hátignar verið.
— Fávisi maður! Hefir þú ekki séð, hve langt er
milli línanna í bók lifsins. Þú les bók lífsins og þykist
sjá alt, sem þar er skráð, en vita skalt þú, að á milli lín-
anna, sem þú sér, er annað letur, sem er ósýnilegt þín-
um augum, og þai' er sagt frá öllu eins og það var. —
Kalla þú á unga manninn þarna, sem gengur við lilið
unnustu sinnar og er á leið til brúðkaupsins og láttu hann
sjá sál unnustunnar i skuggsjánni. Láttu hann svo sjá
hana að ári liðnu, og vittu, hvort hann þekkir hana aftui*.
Kalla þú á annan þessara manna, sem ganga hlið við
hlið og eru hjartfólgnir vinir, og láttu hann sjá sál vinar
síns í skuggsjánni. Að ári liðnu verða þeir svarnir óvinir.
Láttu hann þá sjá í skuggsjána, og vittu hvað hann sér.
Vita skalt þú, heimskingi, að eg gladdist ekki alt af
með þeim, sem voru glaðir, þótt eg létist gera það. Eg
bar stundum nístandi sorg í hjarta, þótt eg létist vera
glaður. Eg hrygðist ekki alt af með þeim hryggu, þótt eg
létist vera hryggur. Eg gladdist stundum í hjarta mínu,
þótt eg létist vera hryggur. Eg gladdist meira að segja
yfir hrygð óvina minna. Eg hataði óvini mina, en eg
lézt elBka þá, til þess að geta náð valdi yfir þeim. Þegar
þú nú veizt þetta, heldurðu þá að vilji minn hafi verið
göfugur eins og þú segir. Kú er eg orðinn betri maður
en eg var. Hið liðna er gleymt. Það veldur mér hrygð-
•ar) að það er rifjað upp. Bókin þín er lygi frá upphafi
til enda. Brendu hana, þá fæ eg frið.