Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1919, Side 22

Skírnir - 01.12.1919, Side 22
228 Jón Thoroddsen. [Skírnir fyrst var talað.« »Á, já, já; nú fer eg að skilja.« Alt er hér eðlilegt. Orðfærið er Gróu, skapgerðin er Gróu, að- ferðin er Gróu. Einmitt svona hressir hún granna sína á kjaftæði, dylgir, þreifai' fyrir sér, kveikir óþreyju og for- vitni og fær margan tóbaksbitann að sögulaunum. Og Gróa verður í liug vorum skyndilega margföld í roð- inu Vér könnumst við kvendið. Hún á heima á hverjum bæ, hefir, að minsta kosti, í seli í hverju hugskoti. Og suma skortir það til afsökunar, er hjálpar Gróu, ef til vill, nokkuð frammi fyrir dómstólnum mikla: ómegð, fá- tækt, bóndarolu og tóbaksleysi. Skáldið heíir markað hana svo vel, að vér vörum oss betur á henni eftir lesturinn. Flestir kunna nú skapferli og sögulist Gróu. Skap hennar er sem vísa, er hvert mannsbarn kann. Hún er einhver þjóðkunnasta konan, er Island á. Jón Thoroddsen veit í flestu aðdáanlega vel laun- ráð listar sinnar. Ilann kemur samt víða við, einkum í »Manni og konu«, fer þar krókótt, verður stundum skrafdrjúgt, en nær því aldrei leiðinlegur, og það þótt honum bregðist boglistin. Mjög mistekst honum einkum bónorðið Þórarins (»Maður og kona«, 22. kap.) og svör hans viðkvonfangs tillögum Sigvalda prests(Maður ogkona*, 23. kap.). Iiann verður þar daufur í dálkinn, sem stafar af svipleysi og blóðleysi þessarar liöfuðhetju skáldsins. En hann kann vel að vekja óþreyju iesenda sinna, svo að þeir vilja ólmir heyra meira, t. d. í »Pilti og stúlku*, Og hann þarf til þess hvorki ódæma né óláta. Honum duga ærslalausir hversdagsviðburðir. I »M. og k.« gengurmiklu meira á. Og höfundar Islendingasagna hafa sjálfa sig ekki minna í frammi í frásögu sinni en Jón Thoroddsen í sög- um 8ínum. Þótt hann hafi sætt áhrifum frá erlendum skáld- um, hefir hann numið margt listatak af sögum vor- um. Hann kynnir nær ávalt persónur sínar að nokkru, áður en hann segir sögur af þeim. Hann byrjar »Mann og konu«, sem sögum vorum er titt: »Maður hét Sig- valdi.« Og stöku sinnum virðist hann rita eftir þeim, t. d. er hann kveður manni hafa sýnst hvítt hagl hrjóta af

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.