Skírnir - 01.12.1919, Page 75
Skirnir]
Færeysk þjóðerniskarátta.
281
um, hvort sem hann yrkir um ástríðuþungar suðrænar
nætur eða tryllingsleg ofviðri, sem slíta af Færeyjum
ánauðarfjötrana, þótt ekki sé um nema stundar sakir. Fær-
eyskum bókmentum eru þessi kvæði til mikillar prýði.
Ilans Andreas Djurhuus kennari, bróðir hans, hefir
ort einna mest færeyskra skálda. Hann hefir gefið út
tvo sjónleiki: Maritu (1908) og Anniku (1917), báða með
efni frá löngu liðnum timum. Marita fer fram á 12. öld
og segir frá konu riddara eins, sem ræður manni sínum
banaráð eftir að gamall elskhugi hefir vitjað hennar, en
iðrast siðan og gengur í klaustur. I Anniku er efnið
gömul þjóðsaga um konu sem drepur mann sinn ogtekur
saman við einn húskarla sinna. En hann svíkur hana í
bendur yfirvöldunum og henni er drekt. Enn fremur
bafa komið út tveir kvæðabálkar eftir Hans Djurhuus:
Hin gamla sögan (1905), er lýsir ástum auðugs ungs manns
og umkomulausrar stúlku, og Hildarljóð (1916), sex kvæði
með efni úr sögu Færeyja. öll eru rit þessi heldur lítils
virði nema helzt hið síðasta. Miklu framar stendur lýrik
Hans Djurhuus. Hann er lipurt skáld, á ef til vill lítið
eitt of hægt með að yrkja. Neitt safn lýriskra kvæða hans
hefir enn því miður ekki komið út nema Barnaríniur
1915 (rímur = ljóð). Mörg þeirrra hafa verið prentuð
1 blöðunum, einkuin Tingakrossi, og dálitið úrval er að
finna i Songbók Foroya fólks. í Ungu Foroyum á hann
uokkrar vel samdar smásögur, flest dýraæfintýri.
Af öðrum mönnum, sem við ljóðasmíði hafa fengist,
er einkum að nefna þrjá: Andreas Sámalsson (Samúelsen)
var mjög riðinn við Foringatíðindi og ritstjóri þeirra eitt
skeið. Nú er hann einn helzti maður sambandsflokksins
°g á sæti í fólksþinginu danska. Simon Michael Zacharias-
sen kennari og einkum Mikkjal bóndi Danialsson á Ryggi
bafa ort mörg kvæði, sem eru með fiinum betri í sinni
röð. Hin helztu þeirra standa i Söngbók; þó hafa mörg-
góð kvæði eftir Mikkjal birst í Tingakrossi síðan hún
kom út.
Það væri full ástæða til að geta fleiri manna, en