Valsblaðið - 01.05.1987, Page 5
„Fór ekki saman
að vera í KFUM og
KR á sama tínra
„Ég hóf feril minn sem Vesturbæ-
ingur og lék því í KR. Ég skipti þó
fljótlega yfir í Val og þar hefur hjartað
slegiðsíðan."
Þetta segir Albert Guðmundsson,
fyrsti atvinnumaður íslendinga í
knattspyrnu. Raunar braut hann
blað í knattspyrnusögu allra Norður-
landanna með samningi sínum við
franska liðið Nancy árið 1947. Hann
varð nefnilega fyrstur norrænna
manna til að stíga niður fæti í veröld
atvinnumennskunnar.
Albert er einn þeirra manna sem
ekki gafst að kukli þegar knöttur var
annars vegar. Fyrir honum lá boltinn
flatur sem rakki fyrir fótum húsbónda
síns. Kúnstirnar sem Albert lék
glöddu augu margra enda hafði
nafntogaður blaðamaður á orði að
kempan gæti gert hvað sem vildi
með tuðruna, - nema fá hana til að
tala.
„Ég náði langt í knattspyrnu
vegna áhuga á íþróttinni í bernsku,"
segir Albert. „Sem krakki var ég með
boltann á tánum frá morgni til kvölds.
Ég var upptekinn af sparki hvernig
sem viðraði. Þetta brölt hlaut að skila
sér með einhverjum hætti, fyrr eða
síðar."
KR og KFUM fóru ekki saman
- Hvað olli brottför þinni frá þeim
Vesturbæingum í herbúðir Vais-
manna?
„Þegar ég æfði í KR hvarf maður í
drengjahaf. Það virtist óvinnandi
vegur að ætia sér viðunandi hlut-
skipti meðal svo margra jafningja
eða jafnaldra. En þessi var þó ekki
dýpsta rót félagsskiptanna í Val.
Miklu heldur vil ég nefna veru mína í
KFUM sem frumorsökina. Það þótti
einfaldlega ekki fara saman að vera
virkur þar og í KR á sama tíma.
Á sautjánda ári í
meistaraflokki
- Nú kom snemma í Ijós að þú
hafðirýmislegt í farteskinu sem aðra
gat aðeins dreymt um að geyma.
Komstu sjáifur auga á hæfileika
þína?
„Ég fann einna fyrst til getu minnar í
fótbolta á götunum og aftur þegar ég
mátti leika í mörgum aldursflokkum
samtímis. Ég var til að mynda á
sautjánda ári þegar ég lék í fyrsta
sinn með meistaraflokki Vals. Svona
skjótur frami varð manni vitanlega
hvatning.. Ég einsetti mér að gera
betur og ná ávallt lengra, sætti mig
aldrei við hlutskipti mitt þótt ég stæði