Valsblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 34
34
„Margir geta náð langt
- segir Hörður Hilmarsson þjálfari 2. flokks
Þótt efnilegir strákar hafi skipað 2.
flokk Vals í fyrra náði hópurinn sér
aldrei á strik og endaði leikárið með
falli úr A-riðli í B-riðil.
Verkefni hins nýja þjálfara þessa
aldurshóps, Harðar Hilmarssonar,
er því að koma strákunum á skrið á
nýjan leik og endurheimta sætið í A-
riðli.
Hilmar er gamall Valsjaxl, rauður í
gegn. Hann gerði þó garðinn frægan
í Firðinum í fyrrasumar og kom þá
Einar Páll, fyrirliði og kjölfesta í vöm
öðrum flokki Fimleikafélagsins upp í
A-riðil; - óvenjulegt „afreksverk"
það.
Gengi 2. flokks Vals hefur verið
rysjótt í vor. Æfingaleikir gáfu fyrir-
heit um ágæt afrek í Reykjavíkur-
mótinu en annað kom á daginn í
mörgum leikjum.
Hörður Hilmarsson sagði þó hóp-
inn skemmtilegan er hann mátti
segja álit sitt á efniviðnum.
„Margir af þessum strákum geta
og koma til með að ná langt,“ sagði
hann.
„Það er jafnframt jákvætt fyrir
þessa stráka að vera í nánari
tengslum við meistaraflokkinn en oft
áður. Þau tengsl eiga rót sína í sam-
vinnu og samskiptum okkar lan
Ross.“
Hörður sagði nauðsynlegt að gera
strákunum grein fyrir háleitum mark-
miðum en þó mætti aldrei færa þá af
grundvelli knattspyrnunnar:
„Menn verða að alast upp með
það fyrir augum að ná langt, verða
jafningjunum fremri, hreppa meist-
aratitil. Þó má aldrei gleymast að
sérhver leikmaður er aðeins hlekkur
í keðju liðsheildarinnar. Með aga og
markvissri þjálfun verður sú stað-
reynd Ijós.
( framhaldi af þessum fullyrð-
ingum sagði Hörður það ráðast af
æfingunni og einbeitingunni hvort
liðið næði að endurheimta sæti sitt í
A-riðlinum.
„Strákunum eru Ijósar kröfurnar
sem til þeirra eru gerðar," sagði
Hörður, „og ég vonast til að þeir
standi undir þeim væntingum."