Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1902, Page 60
40
honum heföi enzt aldur til. Nú voru beztu líkur til að
bygöin mundi bjargast næsta vetur og vera um leið
sloppin úr öllum vandræöum.
15. FLUTNINGUR FRÁ NÝJA ÍSLANDI.
Voriö og sumarið 1880 var flutningur mikill frá
Nýja íslandi til Dakota. Bar margt til þess, en eink-
um sívaxandi sannfæring manna fyrir því, að í Norður-
Dakota væri heppilegt nýlendusvæði. Svo bar líka
við um vorið, að vatnsgangur varð mikill í Nýja íslandi,
þegar snjór þiðnaði og ísa leysti, eins og von var eftir
þennan óvenjulega snjóþunga vetur. Winnipeg-vatn
flæddi út um alla bygð, svo híbýli manna ýmist fyltust
vatni eða urðu meira og minna um flotin. þóttust þá
jafnvel meðhaldsmenn þeirrar nýlendu sannfærast um,
að landið væri oflágt og staðurinn ekki heppilegur.
Var þvf öll veruleg mótspyrna gegn útflutningi látin
falla niður. því míður er nú ekki unt að tilgreina alla
þá bændur, er um þetta leyti fluttu suður til Da-
kota frá Nýja Islandi, en nokkura þeirra skulum vér
nú nefna. þessir námu lönd í grend við Jóhann
Hallson: Björn Jónsson frá Sleitustöðum í Óslands-
hlíð í Skagafirði, Jóhann Jóhannsson frá Steinstöð-
í Tungusveit í Skagafirði, Sölvi Sölvason frá Löngu-
mýri í Húnavatnssýsiu, Indriði Indriðason frá Laxa-
mýri, Sigurjón Ivristjánsson, tengdg.sonur Björnsjóns-
sonar frá Sleitustöðum og Sigurbjörn Björnsson, son-
ur hans, Jón Pétursson frá Kolgröf í Skagafirði, Sig-
urður Rögnvaldsson frá Vöglum í Blönduhlíð, Jóhann-
es Sigurðsson úr Svarfaðardal, Hallgrímur Hallgríms-
son Hólm frá Löngumýri í Hólmi í Skagafirði. Jón
Hjálmarson frá Hvarfi í Bárðardal í þingeyjarsýslu.
Aftur námu þessir land í Vfkur-bygð: Guðinund-
ur Guðmundsson frá Hnausakoti í Miðfiröi; Hulldór
Friðriksson frá Kvennabrekku í Dalasýslu, Halldór
þorgilsson frá Hundadal í Dalasýslu, Jóhannes Jónas.
son frá Grafagerði í Skagafirði, Elína Jónasdóttir,
ekkja frá Hvamnji í Höfðahverfi í Suður-þingeyjar-