Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1902, Side 75
55
Munu þeir hafa slegið með henni mest af hveiti því, er
íslenzkir bændur áttu við Tungá það sumar. þetta
sumar keyptu þeir Víkur-bræður, synir þorláks frá
Stórutjörnum, kornskurðarvél, er Harvester nefndist;
var hún gömul og kostaði 90 dollara. Stóðu tveir
menn á henni meðan hveitið var slegið og bundu jafn-
óðum og urðu þá að hafa hraðar hendur. Mun þor-
steinn þorláksson hafa slegið hveiti fyrir Eirík Berg-
mann og aðra fleiri þetta haust með vélinni. þeir
Tungármenn keyptu fyrstu þreskivélina þetta haust
og var Jóhann Hallsson aðalmaðurinn í þeim kaupum.
Gekk hún af hestaafli eins og flestar þreskivélar um
það leyti. þreskti vél þessi hveiti fyrir flesta íslend-
inga um haustið. Var farið með hana suður í Vík og
þreskt hveiti þeirra Víkur-bræðra, sem nú var töluvert
mikið, og jafnvel suður í Park-bygð og þar þreskt fyrir
nokkura, Hallgrím Gíslason og fleiri. Innlendur mað-
ur frá Crystal þreskti fyrir Eirík Bergmann þetta haust
og fekk hann 500 bushel af hveiti af þeim 20 ekrum,
er hann lét brjóta fyrsta sumarið. Seldi hann það
í St. Vincent og varð að flytja það um 55 mílur til
markaðar; var það löng og erfið leið. Hesta hafði
hann keypt sér um sumarið, tvær hryssur, Polly og
Dolly. Voru það fyrstu hestarnir við Park. Nöfn
fyrstu vinnudýranna í nýlendunni voru öllum eins kunn
og töm og nöfn helztu bændanna; þess vegna er þeirra
hér getið. þeir félagar Benedikt og Sigurjón keyptu
sér einnig samoksmúla þetta sumar. þá fengu þeir
sér líka sláttuvél (mower). Árið eftir (1882) keyptu
þeir Harvester og kostaði hann ekki minna en 175
dollara. Næsta ár (83) keyptu þeir þann hluta af sjálf-
bindara, sem bindur hveitið. Var sá útbúningur sett-
ur ofan á vélina, er þeir keyptu sumrinu áður, þar sem
tveir menn urðu að standa og binda hveitið. Kostaði
sá parturinn af sjálfbindaranum nærri hálft annað
hundrað dollara, svo öll vélin, þegar búið var að tengja
hana saman á þennan hátt, kostaði á 4. hundrað doll-
ara. Voru það nokkuð dýr kaup.