Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1902, Blaðsíða 87
($7
son frá Krossi í Ivinn (83), Finnbogi Erlendsson frá
Víöirkeri í Bárðardal (83), Guttormur Sigurðsson af
Langanesi (83), Jóhann Sveinsson úr Fljótsdal, Niku-
lás Jónsson frá Seyðisfirði (84), Björn Halldórsson frá
Úlfsstöðum í Loðmundarfirði (84), Sæmundur Eiríks-
son frá Kaldbak í þingeyjarsýslu (83), Dínus Jónsson
frá Mýlaugsstöðum íReykjadal í Jtingeyjarsýslu (83),
Jóhannes Jtórðarson frá Vestdalseyri við Seyðisfjörð
(83), Björn Sveinsson frá Efranúpi í Miðfirði í Húna-
vatnssýslu (84), Hjálmar Hjálmarson frá Eyrarlandi
við Akureyri (87).
30. PÓSTAFGREIÐSLUSTAÐIR.
Af dagbók einni, sem eg hefi með höndum, sé eg,
að sunnudaginn 6. feb. 1881 hefir Sigurður Jósúa
Björnsson komið til Jóhanns Hallssonar með bænar-
skrá til stjórnarinnar um, að tveir póstafgreiðslustaðir
yrðu settir í bygðinni, annar suður í Vík hjá síra Páli Jior-
lákssyni, hinn hjá Sigurði Jósúa sjálfum. Var nú ver-
ið að fá menn til að rita nöfn sín undir þessa bænar-
skrá. Var um leið kvartað í skjali þessu til stjórnar-
innar um óreglulegar póstgöngur til Cavalier. Einnig
var þess farið á leit í söniu bænarskránni, að stjórnin
stækkaði nýlendusvæði íslendinga á þann hátt, að hún
keypti meira land af Indíánum. Bænarskrá þessi
mun hafa haft þann árangur, að skömmu síðar voru
póstafgreiðslustaðir þeir, er þar var beðið um, settir.
Fengu þá báðir staðirnir ný nöfn og voru bæði ensk.
Var póstafgreiðslustaðurinn hjá Sigurði Jósúa nefndur
Coulee, en hinn suður í Víkinni Mountain. Var póst-
urinn iluttur í milli einu sinni hverja viku og var J)or-
lákur Jónsson frá Stórutjörnum fyrsti pósturinn frá
Mountain, norður til Coulee og þaðan til Cavalier;
flutti hann póstinn á Úlfari. Síðar (1883?) var póst-
afgreiðslan á Coulee lögð niður og flutt á jörð Jóhanns
Hallssonar, ]?egar þar var farið að verzla. Var þá
nöfnunum breytt og staðurinn nefndur Hallson eftir
Jóhanni Hallssyni, hinum fyrsta landnámsmanni