Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1902, Qupperneq 72
52
Krithóli í Skagafiröi, Friöbjörn Björnsson frá Forn-
haga í Hörgárdal, Jóhann Stefánsson frá Kroppi í
Eyjafiröi, Ólafur Ólafsson frá Jtríhyrningi í Möðru-
vallasókn í Eyjafiröi, Bjarni Bjarnason frá Kamb-
stööurn í Ljósavatnsskaröi, síöast frá Víðirhóli á Fjöll-
um, Jón Níelsson og Jón Björnsson.tengdasonur hans,
frá Kálffelli í Vopnafiröi, þorgils Halldórsson, sonur
Halldórs Jtorgilssonar frá Hundadal, Jóhanna Skafta-
dóttir frá Reykjavík, Davíö Guðmundsson úr Skaga-
firöi, Jón Jónsson frá Borg í sömu sveit, Vigfús Sig-
urðsson, bókbindari, frá Brekku í Kaupangssveit í
Eyjafirði, Siguröur Björnsson úr Fáskrúðsfirði, Kristján
Björnsson frá Klúkum í Hrafnagilshrepp í Eyjafirði,
Níels Steingrímur þorláksson frá Stórutjörnum í Ljósa-
vatnsskarði.
22. EYFORD-BYGÐrN.
Jakob Sigurösson Eyford frá Kristnesi í Eyjafirði
kom suður til Dakota í marzmánuði vorið 1881 og
nam land hér um bil miðja vegu á milli Víkur- og Park-
bygða. Lét hann gjöra sér myndarlegt hús um vorið
og var J>að fyrsta timburhúsið í allri bygðinni. Var
viðurinn fluttur á uxurn frá Pembina. þegar húsa-
gerðinni var lokið, var húsið málað hvítt. það var
því stöðugt kallað lwíta húsiS um þetta leyti. Aðrir,
er þá tóku land þar í grendinni, voru þessir: Bjarni
Olgeirsson frá Rauðuskriðu í þingeýjarsýslu, Sigurður
Sigurðsson stjúpsonur hans, frá Nesi í Höfðahverfi í
þingeyjarsýslu og Asvaldur Sigurðsson, bróðir hans,
Jóhann Geir Jóhannesson frá Snorrastöðum í Hnappa-
dalssýslu, Job Sigurðsson frá Flatnefsstöðum á Vatns-
nesi í Húnavatnssýslu, Jón og Asmundur Asmunds-
synir frá Arnagerði í Fáskrúðsfirði í Suðurmúlasýslu,
Sigurbjörn Guðmundsson frá Mælifelli í Vopnafirði og
Magnús Snowfield, sonur hans. Síðar bættust þar
fleiri við, svo sem Albert Hansarson frá Jarlsstöðum í
Bárðardal (’82), Kristján Kristjánsson frá Syðralóni á
Langanesi í þingeyjarsýslu. Hann kom til Pembina 1879,