Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1902, Qupperneq 98
78
Tungársöfnuður aftur reistur við. þeir, er búsettir
voru fyrir norðan Tungá og umhverfis Hallson, heyrðu
þeim söfnuði til. Sama veturinn (1885) gengust nokk-
urir bændur fyrir safnaðarmyndun á hinum svonefndu
Austur-Sandhæðum. Um vorið myndaðist Austur-
Sandhæðasöfnuður. Vorið 1886 klofnaði Tungársöfn-
uður og Hallsonsöfnuður myndaðist. Síra Friðrik
sameinaði nú Austur-Sandhæðasöfnuð við Vestur-
Sandhæðamenn og klofninginn, sem viðskila haföi orð-
iö við Hallsonsöfnuð, en upphaflega heyrt til Tungár-
söfnuði; kallaðist sá söfnuður Vídalínssöfnuður og hefir
það nafn haldist síðan. þegar búið var að koma skipu-
lagi á alt þetta, þjónaði síra Friðrik þessum söfnuðum:
Garðar-söfn., Víkur-söfn., Vídalíns-söfn., Hallson-
söfn., Pembina-söfn., Grafton-söfn., Fjalla-söfn.
Seinna bættist einn söfnuður enn við, svo þeir urðu 8
alls. Fólkið í norðurhluta Garðarsafnaðar myndaði
söfnuð út af fyrir sig og nefndist þingvallasöfnuður, en
er oftast kendur við Eyford.af því kirkjan stendur þar,
og bygðin er einkend með því nafni. I einum söfnuð-
inum, Vídalíns-söfn., er var stór og fólksmargur, var
prédikað á tveim stöðurn, svo staðirnir, er guðsþjón-
ustur voru fluttar á, voru ekki færri en 9. Til Grafton
varð hann að aka 36 rnílur frá heimili sínu, til Pem-
bina 55, norður fyrir Tungá og upp á Pembinafjöll urn
20 mílur, o. s. frv.
þessir söfnuöir áttu nú alt ógjört. Víkursöfnuöur
átti að sönnu kirkju, en var í miklum skuldum fyrir
hana. Við Harald þórisson, peningamanninn norska,
var hann í 600 dollara skuld. Höfðu 12 bændur í
söfnuðinum gefið jaröir sínar í veð fyrir skuldinni. Var
töluverður kurr í söfnuðinum út af þessu, því menn
voru hræddir um,að þessir 12 bændur kynnu að tapa
jörðum sínuin, því ekki sáu menn neitt færi á að borga
skuldina að svo stöddu. Um haustið tóku tveir heið-
ursmenn skuldina að sér og greiddu féð af hendi til Har-
aldar þórissonar, er vildi helzt ekki veita því viðtöku, af
]?ví hann hugði gott til jarðanna. það voru þeir Björn