Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1902, Blaðsíða 82
62
upp úr vasa sínum, ]?ví hann var eina almennilega
plaggiö, er hann átti í eigu sinni, leit svo á ská upp
til hennar, er sat í háa sætinu, eins og hann langaöi
til a.ð spyrja: Ertu nokkuö óánægö með mig? Aum-
ast af öllu var, ef dansinn var á enda eða í þann veg-
inn, þegar á samkvæmisstaö kom, en það vildi ekki
svo sjaldan til, einkum ef uxarnir voru óþéegir.
27. FJALLABYGÐIN.
Árið 1881 fóru menn þegar að finna til þess, að
nú var farið að þrengjast í bygðinni. Færri voru farn-
ir að fá lönd en vildu. Annarra þjóða menn voru þá
búnir að umkringja landnám Islendinga á alla vegu,
svo bj^gðin þokaðist eftir það ekki mikið út fyrir ]?au
takmörk,er hún þegar hafði fengið. Tóku þá nokkurir
það til bragðs að flytja upp á Pembinahæðirnar og
nema þar lönd einar tíu tólf mílur norðvestur af Vík-
inni í Cavalier County. Árið 1881 námu þessir þar
lönd : Stígur þorvaldsson frá Kelduskógum á Beru-
fjarðarströnd í Suðurmúlasýslu, Stefán Guðmundsson
af Berufjarðarströnd, Jón Jónsson frá Kolgröf í Skaga-
firði, Pétur Jónsson frá Bót f Hróarstungu, Ólafur
Einarsson frá Rangá í Hróarstungu, er numið hafði
land áður niðri á Sandhæðum, eins og fyrri er ritað.
En árið eftir komu miklu fleiri upp á fjöllin á eftir
þeim (1882): Gísli Benjamínsson frá Mel á Hólsfjöll-
um í Norðurmúlasýslu, Jón Guðmundsson af Beru-
fjarðarströnd, Jón Jónsson frá Munkaþverá í Eyjafirði,
Kristinn Hermannsson úr Skagafirði, Jóhannes Jason-
arson þórðarson frá Vatnsenda í Vesturhópi í Húna-
vatnssýslu, Jakob Jónsson frá Munkaþverá, Björn Pét-
ursson frá Hallfreðarstöðum í Hróarstungu. Árið 1883
bættust enn við : Haraldur Pétursson frá Ánastöðum
í Hjaltastaðaþinghá, Gunnlaugur og Jóhann Jónssynir
frá þorvaldsstöðum í Skriðdal, Steingrímur Crímsson
frá Ivópareykjum í Reykholtsdal í Borgarfjarðarsýslu
(86), Hermann Bjarnason frá Viðfirði-við Norðfjörð í
Suðurmúlasýslu (1893).