Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 52
22
ÓI.APUR s. thorgeirsson:
Óhætt mun þess vegma aS bæta þeirri staöhæflng
viS, aS aldrei hafi skorturinn á mikilhæfum mönnum til
aS skipa ýmsar helztu trúnaSarstöSur þjóSarinnar veriS til-
finnanlegri en nú. Stjórnarfyrirkomulag þjóSar vorrar er
nú aS flestu leyti í svo viSunandi horf komiS, aS væri
nógum hæfileikamönnum hvarvetna á aS skipa, er gegna
viklu stöSum sínum meS samvizkusemi og ósíngirni,
mundi hagur þjóSarinnar taka stórkostlegum stakkaskift-
um á tiltölulega stuttum tíma.
Þegar einhverjum er burtu kipt, er skara fram úr
aS ágætum mannkostum ekki siSur en miklum hæfileik-
um, finna allir þeir, er þjóS vorri unna, sáran sting í hjarta
sitt. ÞaS er álíka sárt og tilflnnanlegt og þegar stórt
bardagaskip sekkur á tímum styrjaldar og ófriSar meS
stórþjóSunum. ÞaS er bagi, sem ómögulega getur bæzt
nema meS löngum tíma, -— harmsefni stórkostlegt fyrir
hvert einasta mannsbarn þeirrar þjóSar, er fyrir þvi stór-
tjóni verSur.
Einum slíkum ágætismanni hefir þjóS vor orSiS á
bak aS sjá á liSnu ári, þar sem Páll amtmaSur Briem var
burtu hrifinn á bezta skeiSi. Hann var eflaust sá maSur-
inn, sem þjóS vor hafSi ástæSu til aS bera mest traust til
allra sona sinna, í veraldlegum efnum aS minsta kosti.
Hann skildi flestum betur hvaS aS var. Hann þráSi flest-
um heitar aS bæta úr þvi. Hann hugsaSi flestum alvar-
legar um bót og viSreisn. Og hann hefSi eflaust öSrum
betur kunnaS ráS aS leggja í ótal efnum, ef honum hefSi
enzt aldur.
Páll Jakob Eggertsson Briem var fæddur io. okt.
1856, sonur Eggerts sýslumanns Briem, en systursonur
SigurSar sýslumanns Sverrissonar, —bróSir síra Eiríks
Briem prestaskólakennara og þeirra systkina. Hann
og síra Valdimar Briem, skáldiS á Stóranúpi,voru bræSra-