Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 94
64
ólafur s. thorgfirsson:
eitt. Áskrifendum býsna mörg um var safnað um veturinn
og g'ekk það 'vonum greiðlegar. Efnið í þessu sýnishorni
blaðsins var þetta: Hvers vegna að stofna kirkjublað?—
Kristindómurinn opinberan frá guði (þýtt).— Hvernig á
að haga sunnudagsskólanum.—Endurskoðaða biblíu-út-
legging-in enska. — „Kenning hinna tólf postula“.—
Kikjulegar nýjungar á íslandi.—Hvað söfnuðum vorum
hér vestra líður.—Lúterska kirkjan í Ameríku.—í útgáfu-
nefndinni voru: Baldvin L. Baldvinsson, Jón Bjarnason,
Friðjón Friðriksson og til vara Páll S. Bardal.
Fyrsta tölublað ritsins kom ekki út fyrri en í marz-
mánuði 1886. Það var sérlega vandað að öllum frágangi,
með fögru letri spánnýju á ágætum pappír. Sáu menn
þá að hægt var, að láta frágang vera vandaðan á íslenzk-
um bókum og blöðum er hér væri gefið út og urðu því
næsta fegnir, því hér var jafn-vel vandað til alls, efnisins,
málsins og ytra útlits, alt í lagi miklu betra en áður
hafði átt sér stað um það, er hér hafði prentað verið.
Uni þessar mundir átti íslenzka kirkjan á fósturjörð
vorri alls ekkert málgagn, svo naumast lét nokkur rödd
tíl sín heyra um kirkjuleg efni. Trúarlífið virtist sofa
svefni allþungum og ekki varð eiginlega nokkurs áhuga
hjá neinum vart til að vekja af þeim svefni. Þá hefur
,,Sameiningin“ göngu sína hér vestan hafs og nefnir sig:
Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi Islendinga,
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í VestUrheimi.
Fáum vér ekki betur skilið, en það muni ávalt viðurkent
' verða, að þetta ætlunarverk sitt hafi hún leyst ótrauðlega
af hendi og góðan hlut átt að þeirri vakning til öfiugra
áhuga í kirkjulegum efnum, sem vart hefir orðið á fóstur-
jörðu vorri á síðari tímum. Það leið ekki á löngu áður
annað kirkjumálarit með líku sniði reis upp á íslandi, þar
sem Kirkjublaðið var, seni út kom í júlí 1891, og er