Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 57
ALMANAK 1906.
27
Hann rekur þar sögu alþýðumentunarinnar með stór-
þjóðum heimsins og sýnir fram á með svo ljósum rökum
að ekki er unt að hrekja, að mentunarástand þjóðar vorrar
sé í miklu lakara lagi en nokkurar mentaþjóðar annarrar.
Jafnvel Færeyingar séu þar töluvert á undan. Hvergi sé
jafn-litlu fé til alþýðufræðslu kostað og hvergi sé því fé
jafn-óviturlega varið. Haldi þessu áfram, hljóti þjóðin að
sökkva niður í fáfræði,og búskapur hennar allur að lenda í
handaskolum. Úr þessu verði þjóðin að bæta með því að
leiða skólaskyldu í lög og veita öllum börnum landsins
kost á nægilegri fræðslu. Hún verði að sjá um, að upp
kornist á íslandi alþýðuskólar, er ekki standi alþýðuskól-
um annarra þjóða á baki.
Því miður er eigi unt að fara hér langt út í hið afar-
viðtæka efni ritgjörðar þessarar. Hún vakti eftirtekt
mjög mikla, enda ber hún það fyllilega með sér, að höf-
undurinn hefir um efnið hugsað lengi og vandlega, og
enga fyrirhöfn sparað tii að afla sér áreiðanlegrar þekk-
ingar á öllu, er að því lýtur.
En þeir, sem álíta íslenzkan almúga betur mentaðan
og upplýstan en alþýðu annarra þjóða, sem því miður eru
ekki svo fáir, þótt barnalegt sé, urðu nú fokvondir og
sögðu nú, að amtmaðurinn hefði svívirt þjóð sína. Mun
óhætt að fullyrða, að vinsældir hans á Norðurlandi hafi
beðið heilmikinn hnekki í bili í tilefni af ritgjörðinni. Enda
var Páll Briem maður oflangt á undan samtíð sinni, of
glöggskygn og hreinskilinn, of samvizkusamur í allri em-
bættisfærslu og of áhugasamur um að kippa ólaginu í lag,
til þess að fá ekki fordóma vanablindrar alþýðu við að
stríða.
Aldrei hafa fordómar og blindni komið átakanlegar í ljós
en þegar Húnvetningar höfunðu Páli Briem við kosningar
alþingis, en kuru í stað hans bóndamann óvalinn, er