Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 125
ALMANAK 1906.
95
ákafur. Skrifari Nelsons féll dauöur viÖ hlið hans á skip-
inu ,,Victory“, og rétt á eftir flaug’ kúla milli Nelsons
og Hardy skipaforingja. Stundu síöarsærðist Nelson bana-
sári. Kúla kom í vinstri öxl hans og gegn um lungun og
mænuna. ,,Þar hafa þeir loksins gjört út af viö mig,
Hardy“, siigöi Nelson, um leið og hann hné niður, ,,Eg
vona ekki“, sagði Hardy. ,,Jú“, svaraði Nelson, ,,hrygg-
urinn á mér er í sundur. “
Hann var borinn undir þiljur, og lifði við kvalir í þrjá
klukkutíma. En jafnvel meðan dauðastríðið stóð yfir,
spurði hann hvað eftir annað, hvernig orustan gengi. Er
honum var sagt, að fimtán af skipum Frakka væru eyði-
lögð, breiddist sorgarský yfir andlit hans. Eru þau að
eins fimtán?“ sagði hann. ,,Eg hafði vonað að þau yrðu
tuttugu11. Svo skipaði hann að kasta akkerum, því óveð-
ur væri í aðsigi. Hardy kvað Collingwood flotastjóra
myndi líta eftir því sem gera þyrfti. ,,Ekki meðan eg
lifi“, svaraði Nelson, og gerði tilraun til að rísa á fætur.
,,Kastaðu akkerum Hardy“, sagði hann einbeittlega, og
þessari síðustu skipan hans var hlýtt. ,,Kystu mig,
Hardy“, sagði hann við vin sinn stuttu seinna. Svo lok-
aði hann augunum, ánægjubros breiddist yfir varir hans.
,,Guði sé lof, eg hefi gjört skyldu mína“, mælti hann, og
voru það hans síðustu orð.
Áhrif bardagans voru algjör, og jafnvel þeir, sem
vonað höfðu hins bezta, höfðu ekki dirfst að búast við svo
stórfeldum sigri. Orustan við Trafalgar gjörði enda á
sigurdraumum Napóleons, að svo miklu leyti, sem þeir
snertu England. Átján af skipum Frakka eyðilögðust,
og hin flýðu burt úr bardaganum. Þá fyrst var hægt að
segja með vissu, að það yrði að áhrínsorðum: ,,Drotnaðu
yfir öldunum, Bretland.“
Nelson var jarðaður með viðhöfn mikilli 9. janúar