Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 64
34
ólafur s. thorgeirsson:
Hann nefnir sig Ralph Connor, en það er eig’inleg’a
dulargerfi hans. Réttu nafni heitir hann C.W. Gordon.
Það atvikaðist nokkuð skringilega að hann fekk þetta
gerfinafn. Hann hafði samið við ritstjóra einn austur frá um,
að fyrsta skáldsagan hans yrði prentuð í tímariti einu, sem
“Westminster“ kallast, en tekið fram um leið, að hann
ætlaði sér ekki að láta hana' koma út undir eigin nafni sínu,
án þess þó að taka nokkurt ákveðið gerfinafn til. Þegar
búið var að setja sögrmá,sendi ritstj.höfundinum hraðskeyti
og bað hann um nafnið. Presturinn fór að hugsa sig um.
Hann var þá umsjónarmaður trúboðs Presbytéra í norð-
vestur Kanada og var það prentað með stóru letri á bréfa-
pappírinn hans eins og gjörist. Augað staðnæmdist við
orðin ,,Canadian North“; hugkvæmist honum þá að stytta
þetta,gjöra úr því Cannor og láta það verða dularnafn sitt.
En ritsímarinn gjörði honum þann grikk að búa til úr þvi
Connor, sem er býsna algengt nafn írskt. Ritstjórinn hálf-
hneykslaðist á írska nafninu; kom honum þá það heiliaráð
í hug að bæta það upp með því að setja enskt nafn algengt
fyrir framan. Með þessu móti varð sagan eftir Ralph Con-
nor og má nærri geta, að höfundurinn hafi rekið upp stór
angu, en lét sér þó vel líka og hefir borið það nafn síðan.
Gordon prestur er samt hvorki enskur né írskur,
heldur rennur hreint blóð skozkt í æðum hans. En þar
sem hann er borinn og barnfæddur hér í Kanada, er hann
ósvikinn Kanad&maður að öllu. Faðir hans er prestur,
öldungur mikill nú orðinn, sem til er tekið sem hinnar
mestu kempu að burðum og líkamsatgjörfi, enda er
hann nú að ferðast yfir Atlants-hafið áttatíu og íjögra ára
gamall eins og ekkert væri. Hann kom ungur til Kanada
og gjörðist prestur í bygðarlagi einu sközku. Gekk hann
þar að eiga konu eina, hámentaða prestsdóttur, sem nítján
ára gömul varð kennari í heimspeki við skóla þann í