Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 83
ALMANAK 1906.
53
söfnuðir, því öllum var þegar um það hugað að halda
kristindómi og trúrækni við lýði.
Skömmu eftir komu síra Jóns hingað vestur mun það
hafa borið í tal með þeim prestunum,síra Hans og honum,
að söfnuðurnir íslenzku ættu að mynda allsherjar félags-
skap með sér eða ganga í bandalag til að efla hver annan
og styðja í viðhaldi kristindómsins. Kom þeim báðum
saman um að gangast fyrir þessu. Síra Hans, sem fyrst-
ur mun hafið hafa máls á þessu, bauð til fundar hjá sér að
Mountain í Pembina County; var sá staður oftast um
þetta leyti nefndur Vík með í'slendingum. Var öllum ís-
lenzkum söfnuðum boðið að senda þangað fulltrúa og
komu þeir saman þar 23. jan. 1885.
Á fund þenna sendi söfnuðurinn í Winnipeg þessa
erindreka: Magnús Pálsson, Jón Björnsson, Árna Frið-
riksson, Pál Sigurgeirsson Bárdal og Sigurð J. Jóhannes-
son. En síra Jón Bjarnason mætti þar fyrir hönd safnað-
arins í Argyle Sökum þess hve merkilegur fundur þessi
mun ávalt þykja, setjum vér hér um leið nöfn hinna ann-
arra fulltrúa, er þar komu saman. Fyrir hönd íslend-
inga í Nýja íslandi var þar Friðjón Friðriksson. Fyrir
söfnuð við LittleSaltí grendvið Grafton í Norður-Dakota,
Ólafur Guðmundsson. Fyrir Tungársöfnuð, Þorsteinn
Jóhannesson, Björn Árnason, Björn Skagfjörð og Pálmi
Hjálmarsson; fyrir Pembinasöfnuð, Sigurður Mýrdal,
Stefán Eyjólfsson og Jón Jónsson; fyrir Garðarsöfnuð
Eiríkur H. Bergmann, Jón Bergmann, Sigfús Bergmann,
Hallgrímur Gíslason og Jósef Sigvaldason (Walter); fyrir
Parksöfnuð Jón Thordarson, Jakob Líndal, Ásgeir Helga-
son,Jónas Hall og Kristinn Kristinnsson; fyrir Víkursöfn-
uð síra Hans Thorgrímsen, Haraldur Thorláksson, Frið-
björn Björnsson, Halldór Reykjalín og Jón G. Pálmason.
—Þeir, sem þektu landnámsmennina íslenzku vestan hafs
5