Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1942, Qupperneq 39
ALMANAK 3942
37
dóttir foreldra sinna, en á fjóra bræður: Níels og
Einar, lögmenn, og Ólaf og Kristján, lækna. Þau
hjón, Lilja og Valdimar eiga fjögur börn: Sigrún
Dolores f. 28. apr. 1927; Elena Helga f. 12. maí
1929; Jón Valdimar, f. 21. nóv. 1930; Lilja María f.
20 marz 1933.
Jónína Steinunn Sigfúsdóttir Bergman er f. 1.
marz 1891, að Krókstöðum, Miðfirði, Húnavatns-
sýslu. Foreldrar hennar voru Sigfús Guðmunds-
son Bergman og Guðrún Jónsdóttir frá Sveðju-
stöðum í Miðfirði. Hvað systkini Jónínu voru mörg
er mér ekki ljóst. En eitt af þeim var Jón Sig-
urður Bergman sem orti Ferskeytlur. Hagyrðing
kallaði hann sig, og sannarlega var hann hagorð-
ur. En hann var meira, því í Ferskeytlum hans er
snild, sem einungis skáld eiga yfir að ráða. Guð-
mundur Bergman afi þeirra systkina — föðurfaðir
— var Skúlason, bróðir sr. Sveins Skúlasonar,
prests að Staðarbakka, og um eitt skeið ritstj.
Norðra. Sr. Sveinn var hagorður vel. Móðir Guð-
rúnar Jónsdóttur, var Ingibjörg, dóttir sr. Halldórs
Ásmundssonar prófasta að Melstað í Miðfirði. í
föðurætt eru þau komin af Bergmannsættinni, því
Júlíana Steinsdóttir Sigfússonar Bergmans frá
Þorkelshóli í Víðidal var amma þeirra — þ. e.
móðir föður þeirra.
Jónína var hjá foreldrum sínum til fullorðins
ára. Kom vestur um haf, til Winnipeg, ári, 1911.
Þar giftist hún Sigtryggi Ágústssyni, ættuðum úr
Eyjafirði. Þau eignuðust son þann er Erlingur
hét. Hann fluttist með móður sinni vestur að
hafi til Point Roberts, Washington, árið 1925. Þar
voru þau nokkur ár; fluttu þaðan til Bellingham.
Þar lézt Erlingur árið 1933, 16 ára gamall, og hið
efnilegasta ungmenni. En Jónína er þar, og hefir
fengist við verzlun hin siðari ár. Jónína er vel
gefin, eins og hún á ætt til.