Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1917, Blaðsíða 7
ALMKNAK 1917
3
Páskatímabilið.
Kirkjuþing’ið í Nicæa, erhaldið var árið 325 eftir Krists fæðing,
ákvað og leiddi í lög kirkjunnar, að páskahátíðin skyldi ætið haldin
vera hinn fyrsta sunnudag eftir fyrsta tungl, er springi út næst eftir
20. inarzmán. Samkvæmt ákvæði þess getur páskahátíðin átt sér
stað á 35 daga tímabili, nefnilega á tímabilinu írá 22. marz til 25.
apríl, að þeim dögum báðum meðtöldum. Þetta tímabil er nefnt
p á s k a t í m a b ii i ð. Af þessu leiðir, að ef tungl væri fult 21.
marz, og 22. marz bæri upp á sunnudag, þá yrði sá dagur (22.)
páskadagur. Fyr á ári geta páskar aldrei orðið. Þetta átti sér
stað árið 1818. En sé tungl fult 18. apríl, og 18. apríl bæri upp á
sunnudag, vrði næsti sunnudagur páskadagur, netnil. 25. apríl.
Það kom fyrir síðast árið 1886.
Páskadagur.
............. 8. Apríl
1918 .............31. Marz
1919 .............20. Apríl
1920 ............. 4. Apríl
Sóltími.
Sólarhringur er sú tímalengd,er líður á milli þess,ersólin geng-
ur yfir ákveðna hádegislínu,og er það hin eðlilegasta skiftingtímans.
En sökum hinnar mismunandi hreifingar jaiðarinnar umhverfis sól-
ina og sökum bugsins á sólargangslínunni (Ecliptic), er aldrei ná-
kvæmlega jafn-langur tími milli þess, er sól gengur yfir ákveðna
línu. Af því leiðir, að það er lítt mögulegt að setja stundaklukku
eftir sól. Til að ráða bót á þessum mi«mun, setja menn svo aö önn-
ur sól sé til, og að hún gangi með jöfnum hraða þvert yfir mlðjarðar-
línuna. Er sú ímyndaða sól þá stundum á undan og stundum á eftir
hinni einu virkilegu sól. Er sá mismunur mestur 16 mínutur. Rétt-
ur sóltími er miðaður við hina virkilegu sól, en hinn svo kallaði
,,meðal sóltími“ aftur á móti, er miðaður við hina ímynduðu sól.
Til skýringar má geta þess að það er að eins á tveimur dögum á
árínu—á jafndægrum haust og vor—að ,,meðal sóltíma“ og rétt-
um sóltíma ber saman, því á þeim tveim dögum að eins er buglínan
eða sólargangslínan yfir miðjarðarlínunni.
TIMINN er í þessu almanaki viðaður við 90. hádegisbaug.
Till þess að finna meðaltíma annara staða, skal draga 4 mínútur
frá fyrir hvert mælistig fyrir vestan þennan baug, en. baeta 4
mínútum við fyrir hvert mælistig austan hans.