Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1922, Page 8
Á þessu ári teljast liSin vera
frá Krists fæöingu............. 1922 Ár
ÁriB 1922 sunnudagsbókstafur A; Gyllinital 4.
Myrkvar.
Áriö 1922 verða tveir myrkvar,
1. Hringmyndaöur sólmyrkvi 28. marz ; ósýnilegur
hér í álfu.
2. Almyrkvi á sól-u 21. sept.; ósýnilegur hér í álfu.
Um tímataliS.
Forn-Egyptar skiftu degi og nóttu i 12 kl.-stundir
hvoru,—-og hafa Gyöingar ogGrikkir ef til vill lært þá venju
af Babýloníu mönnum. Þaö er sagt, að deginum hafi
fyrst veriö skift í klukkustundir árið 2g3 f, Kr., þegar
sólskífa fyrst var smíðuö og sett upp í Quirinus-muster-
iau í Róm. Þangaö til vatnsklukkurnar voru uppfundnar
(árið i5ö f. Kr.) voru kallarar (eða vaktarar) viðhafðir í
Róm til aö segja borgarbúum livað tímanum liði. Á Eng.
landi voru vaxkertaljós höfð fyrst frameftir, lil aö segja
mönnum, hvaö tímanum liði. Var áætlaö, aö á hverri
klukkustund eyddust 3 þumlungar af kertinu. Hin fyrsta
stundaklukka (tímamælir—sigurverk í líkingu við þær,
sem nú tíðgast, var ekki fundin upp fyr en árið 1250.
Fornmenn á Norðurlöndum töldu flestir, að dagur byrjaöi
með upprás sólar. Aþenumenn og Gyðingar töldu hann
byrja á sólsetri og Rómverjar, eins og vér, á miðnætti.