Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1922, Qupperneq 46
32 ÓLAFVR 8. TH0ROE1R880K :
til Lincolns. Hann þekkir þjóð sína vel. Fyrir-
lestra hefir hann flutt um land alt, hæði í sambandi
við Chautauqua-starfið og sem stjórnmála- og
l'laðamaður. Að því kippir honum í kyn til ann-
ara andlegra aðalsmanna, norrænna og vestrænna,
að hans fyrsta hugsun er jafnan náskyld Lincolns:
‘ Er það rétt?” — Hann er því ekki ávalt “upp í
móðinn”. Tíðarandinn er ekki hans hæstiréttur.
Talinn er hann óeigingjarn og allra manna gæf-
lvndastur. Jafnaðargeði hans er viðbrugðið.
Karlmenska hans hans er frábær og er hún kyn-
fylgja. Harding er rúm sex fet á hæð, eftir því
þrekinn, riðvaxinn og að öllu manna tigulegastur.
Mælt er að hann þekki þrek sitt, þótt fáir muni
honum ljúfari meðal voldugra manna. Augun eru
blá og túlka blíðlyndi hans. Umburðarlyndur er
hann, jafnvel við mótstöðumanninn, en fáar sendi-
nefndir munu skjóta honum skelk í bringu. peg-
ar hann var útnefndur létu ýmsir á sér heyra, að
hann myndi vikadrengur valdhafanna; — að hér
væri um einhvern ívar beinlausa að ræða, sem bor-
inn væri til tignar af bræðrum sínum, embættislýð
og auðvaldi þjóðarinnar. En þó embættisrekstur-
inn sé enn ekki langur, munu flestir, enda andstæð-
ingarnir, 'kannast við hið gagnstæða í eðlisfari og
starfi forsetans.
Faðir hans segir á þessa leið frá einkennum
sonarins:
“Hann hugsaði ávalt fyrst um aðra menn, en
síðast um sig. pað, sem fleira, hefir hann frá móð-
ur sinni. Engin kona er hennar líki. Hið góða,
glaða eðlisfar hefir Warren beint frá henni. Hið
hulda afl í lífi 'hans er frá góðri móður. Móðirin
kendi honum og það var móðirin sem lét drenginn
sinn byrja lífið rétt.
Ástríki þeirra var mikið. Hjá henni lærði hann
að elska, — elska meðbræður sína. pau máttu
naumast skilja, enda fylgdust þau jafnan að. Hún