Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1922, Blaðsíða 72
58
ÓLAFUR 8. TU0RGFÍHS80N :
lézt 1892, og fór þá til Reykjavíkur og stundaði sjó-
mensku í átta ár, og síðan hingað og tók hér land.
Kona hans er Sigriður Sveinbjörnsdóttir Loptsson-
ar, sem áður er getið um.
Jón ólafsson. Fæddur 1826 á porbergsstöðum
í Dalasýslu. Kona hans Kristbjörg Bergþórsdóttir
i'. 1830 á Leikskálum í Haukadal. Bjuggu þau fyrst
á porbergsstöðum, en síðar á Hornstöðum. peim
varð 19 barna auðið og komust 13 til fullorðins ára,
sem þau ólu önn fyrir og má af því ráða, að þar hefir
ráðdeild og dugnaður haldist í hendur að leysa upp-
eldi þessa hóps, eins vel af hendi og þeim tól^st þaö.
Sérstaklega var til konunnar tekið, hvað hún hefði
afkastað viðvíkjandi búskapnum. Jón var mesti
dugnaðar- og framfaramaður, en naut sín ekki á
heimilinu af þeirri ástæðu, að hann stundaði smá-
skamtalækningar og var því sífelt á ferðalögum og
mikill gestagangur á heimili hans, og eyddi þannig
rniklu af tíma sínum frá heimilisstörfum. Hjón
þessi fluttust af íslandi árið 1888 og komu hingað
um haustið og voru til húsa um veturinn hjá Tóm-
asi Pálssyni. Um vorið nárnu þau land og áttu þar
heimili, þar til Jón lézt 1890. Var hans mjög sakn-
að af öllum þeim, er honum kyntust, því hann var
heppinn r lækningum sínum og hjálpaði mörgum
þann stutta tíma, sem hann dvaldi hér. Eftir lát
manns síns fór Kristbjörg til Arngríms Kristjáns-
sonar, tengdasonar síns, sem giftur var Ásu Sólveigu
dóttur þeirra, og þar lézt hún 1894.
Bergþór ólafur Jónsson, sonur Jóns ólafssonar
og Kristbjargar Bergþórsdóttur, sem næst á undan
eru talin. Hann var fæddur 1853. Giftist 1885
pórunni Stefánsdóttur frá Kalmanstungu í Hvítár-
síðu, og fóru þau í húsmensku að Hamraendum í
Stafholtstungum til Björns Jónssonar og ólafíu
Stefánsdóttur systur pórunnar. Fluttust til Can-