Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1922, Side 86
VI
ÓLAFVR 8. THOROEIR88ON :
um $8,000. par er nú kent, auk vanalegrar alþýðu-
skólafræðslu, 9. og 10. stig af miðskólafræðslu.
Lánið. —
Á árunum 1886, þegar verið var að byggja M.
and N. W. brautina hingað (nú C.P.R.), þá lánaði
það járnbrautarfélag nýbyggjum smá upphæðir til
að byrja búskap með. Seinna myndaðist félag, sem
nefnt var Canada Settlers Loan and Trust Co., sem
lánaði bændunum $300 til $400 til að reisa bú á
löndum innan vissrar vegalengdar frá brautinni.
Auðvitað voru löndin veðsett fyrir skuldinni.
Mörgum varð þetta til góðs. í fyrsta lagi hefðu
margir alls ekki byrjað búskap án þess. Og þó marg-
ir sleptu löndum sínum og lausafé því, sem enn
var óeytt, til féiagsins, þá höfðu þeir fengið tölu-
verða reynslu í búnaði. Líka veitti sambands-
stjórnin, þeim, sem mistu heimilisrétt sinn á þenna
hátt, þau hlunnindi, að mega kaupa 160 ekrur hvar
sem þeir fundu heimilisréttarlönd ónumin, fyrir $1.00
ckruna. Og margir íslendingar búa nú góðum bú-
skap á þannig keyptum löndum, sem áður gengu
í gegn um búnaðarskóla frumbyggjanna í ping-
vallanýlendu.
Kirkjumál.
í Almanakinu 1918 eru taldir upp prestar er
komu til bygðar þessarar fram að árinu 1898. Eft-
ir það komu ýmsir af kirkjufélagsprestunum hing-
að, flúttu guðsþjónustur og intu prestverk önnur af
hendi. Séra Pétur Hjálmsson var hér fyrir
lengri og skemmri tíma hvert ár frá 1902—1906.
Árið 1909 var séra Hjörtur J. Leó vígður til ping-
valla og Konkordíusafnaða og þjónaði þeim söfn-
uðum til vors 1912, að hann fór vestur á Kyrra-
hafsströnd, en séra 'Guttormur Guttormsson tók
prestköllun hjá þessum söfnuðum og var hér þjón-
andi prestur þar til í júní 1918.