Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands - 01.01.1914, Side 4

Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands - 01.01.1914, Side 4
4 11. gr. Aðalfundir eru lögmætir án tillits til hve margir fjelagar eru mættir. Til breytinga á fjelags- lögunum útheimtast 2/3 greiddra atkvæða, en í öllum öðrum málum ræður einfaldur meirihluti, þó með þeirri undantekningu, er getur um i 3. gr. 12. gr. Kosning formanns og stjórnar fer fram skriflega. Fjarverandi fjelagsmenn geta tekið þátt í kosningunni með því að senda fjelaginu atkvæðaseðla undirritaða með nafni sínu. 13. gr. Formaður skal kosinn til tveggja ára, og er ekki kjörgengur við næstu formannskosningu þar á eftir. 14. gr. í stjórn sitja, auk formanns, 3 fjelags- menn, og gengur einn úr stjórninni hvert ár eftir röð, fyrstu tvö árin eftir hlutkesti. Endurkosning er leyfileg. Ef sæti verður autt í stjórninni, skipar hún sjálf mann í það til næsta ársfundar. 15. gr. Stjórnin heldur gjörðabók, skiftir sjálf með sjer verkum og ákveður starfsaðferð sína. 16. gr. Fundir skulu venjulega haldnir einu- sinni á mánuði á tímabilinu frá 1. okt. til 30. april. Halda má fundi á öðrum tíma árs, ef ástæða er til. Fundi skal boða með skriflegri tilkynningu til hvers einstaks fjelagsmanns. Formaður eða einhver úr stjórninni stýrir fundum. Stjórnin getur boðið gesl- um á fundi. Á fundum skal gefa skýrslur og hafa fyrirlestra og umræður um verkleg efni og önnur efni, sem þýðingu hafa fyrir fjelagið og fjelagsmenn. Af öllum skýrslum og fyrirlestrum skal sá er flytur láta stjórn- inni í tje ritaðan útdrátt. Stjórnin lætur gera út- drátt af umræðum um verkleg mál á fundum. Þessa útdrætti skal geyma í skjalasafni fjelagsins. Ef kring- umstæður leyfa getur stjórnin látið prenta slíka út- drætti, svo og aðrar skýrslur sem lienni þykir ástæða til, og skal hver fjelagsmaður fá sitt eintak al' öllu því, er hún lætur prenta. Án samþykkis fjelags- fundar má engar aðrar skýrslur birta um það, sem fram hefur farið á fundi. Flutningsmenn ráða sjálfir á hvaða máli þeir ílytja erindi sín. 3. Fumlarliold. Annar fundur fjelagsins var lialdinn á Hólel Reykjavík þriðjudaginn 28. maí 1912. í fjarveru for- manns stýrði varaformaður fundinum. Flutti hafn- arverkfræðingur C. Bech, Helsingör, erindi það um »Jærnbeton, særlig dels Anvendelse i Havvand«, sem skýrt er frá hjer aftar. Voru umræður nokkr- ar á eftir og tóku þált í þeim auk ræðumanns, K. Zimsen, O. Forberg, Ásgeir Torfason og Th. Krabbe. Á fundinum voru 8 fjelagsmenn. 3. fundur var haldinn á Hótel Reykjavík þriðju- daginn 15. október 1912. Fundinum stýrði varafor- maður. Eftir að nokkur fjelagsmál höfðu verið rædd, llutti Jón Þorláksson erindi um »Brúna á Ytri Rangá«. Er skýrsla um málið prentuð hjer aftar og sömu- leiðis útdrátlur á ensku. Á fundinum voru 11 fjelagsmenn. 4. fundur var haldinn á Hótel Reykjavík föstu- daginn 22. nóvember 1912. Formaður stýrði fund- inum. Talaði Rögnvaldur Ólafsson um nauðsyn ýmsra nýrra ákvæða í byggingarsamþykkt Reykja- víkurkaupstaðar. Skýrsla um ræðu R. (). er prenluð hjer aftar og sömuleiðis útdráttur á ensku. Voru á eftir nokkrar umræður, og tóku þátt í þeim K. Zim- sen, Jón Þorláksson, Ásgeir Torfason og M. Jessen. Að lokum bar K. Zimsen fram tillögu um að innan fjelagsins skyldi sett þriggja manna nefnd til að semja reglur um cement, eiginleika þess til að teljast Port- lands-cement og til þess yfirleitt að mega teljast versl- unarvara. Var tillagan samþykkt og í nefndina kosnir: Jón Þorláksson, Ásgeir Torfason og Geir Zoega. Á fundinum voru 11 fjelagsmenn. 5. fundur var lialdinn á Hótel Reykjavík þriðju- daginn 10. desember 1912. Formaður stýrði fundin- um. M. E. Jessen flutti erindi um mótora, gerð þeirra, hreyfiaíl og gang, og sýndi myndir og upp- drætti. Utdráttur af erindinu er prentað hjer aftar. Á fundinum voru 12 fjelagsmenn. 6. fundurinn var haldinn á Hótel Reykjavík fimmtudaginn 30. janúar 1913. Formaður stýrði fundinum. Flutti Ásgeir Torfason erindi um efna- rannsóknir nokkrar er liann hafði gert á melkorni, svo og á nokkrum sæþörungum. Erindið er tekið upp hjer aftar, en liefir áður verið prentað í »Bún- aðarrit« 24. og 25. árg. Útdráttur á þýsku er einnig gefinn. Á fundinum voru 10 fjelagsmenn. 7. fundurinn, sem var aðalfundur, var haldinn þriðjudaginn 4. marz 1913. Var Ásgeir Torfason kosinn fundarsljóri. 1. Formaður las upp skýrslu um störf fjelagsins á umliðnu ári, fundarhöld og aðgerðir stjórnar- innar. 2. Gjaldkeri lagði fram reikning fjelagsins, og var liann samþykktur af endurskoðendum. Höfðu tekjur fjelagsins verið kr. 130,66, en gjöldin kr. 38,87; í sjóði til næsta árs kr. 91,79. 3. Samkvæmt 14. gr. laganna var dreginn úr

x

Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands
https://timarit.is/publication/404

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.