Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands - 01.01.1914, Blaðsíða 5

Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands - 01.01.1914, Blaðsíða 5
5 stjórninni einn inaður, og varð fyrir því Th. Krabbe. Var hann endurkosinn. 4. Endurskoðendur, Sig. Thoroddsen og Geir G. Zoega voru endurkosnir. Á fundinum voru 10 fjelagsmenn. 8. fundurinn var haldinn á Hótel Reykjavík föstu- daginn 28. marz 1913. Formaður stj'rði fundinum. Eftir að nokkur fjelagsmál voru rædd, talaði P. Smith um »trádlös telegraii«; erindið er prentað hjer aftar. Á fundinum voru 12 fjelagsmenn og N. P. Ivirk hafnarverkfræðingur. 9. fundurinn var haldinn á Hólel Reykjavík þriðjudaginn 29. april 1913. Fjehirðir stýrði fund- inum. Eftir að nokkur fjelagsmál voru rædd, ílutti Th. Krabbe erindi um »Pælekrebs og Pæleorm og deres Forekomst paa Island«. Erindið er prentað hjer aftar og sömuleiðis útdráttur á þýsku. Rjarni Sæmundsson adjunkt tók til máls á eftir og skýrði frá athugunum sínum. Bauð hann fjelagsmönnum að skoða náttúrugripasafnið á uppstigningardag 1. maí. Á fundinum voru 9 fjelagsmenn og Bjarni Sæ- mundsson adjunkt. 10. fundur var haldinn í Báruhúsinu föstudag- inn 16. maí 1913. Varaformaður stýrði fundinum. Verkfræðingur Chr. Petersen, Köbenhavn, flutti erindi um »Anvendelse af Jernbeton og Jernbetonkonstruk- tioner i Havvand«, og voru skuggamyndir sýndar til skýringar. Á fundinum voru 12 fjelagsmenn, verkfræðing- arnir Chr. Petersen og N. P. Kirk og skógræktarstjóri Koefoed Hansen. Gekk N. P. Kirk inn í fjelagið á fundinum. 11. fundurinn var haldinn á Hótel Reykjavík þriðjudaginn 25. nóvember 1913. Formaður stýrði fundinum. Til grundvallar fyrir umræður um bygg- ingarsamþykkt fyrir Reykjavík lá fyrir frumvaip til byggingarsamþykktar fyrir Hafnarfjörð, sem Rögn- valdur Olafsson hafði samið og slcýrði frá. í um- ræðunum tóku aðallega þátt K. Zimsen, Jón Þor- láksson og Th. Ivrabbe auk Rögnvalds Ólafssonar. Á fundinum voru 13 fjelagsmenn. 12. fundur var haldinn á Hótel Reykjavík þriðju- daginn 16. desember 1913. Formaður stýrði fund- inum. Landssímastjóri O. Forberg hjelt fyrirlestur »Om Telegrafens og Telefonens Anlæg og Udvikling paa Island«. Fyrirlesturinn er prentaður hjer aftar og útdráttur á þýsku. 4. Önnnr störf. Á 4. fundi fjelagsins var eftir íillögu K. Zimsens kosin eemenlsnefnd. Skýrsla hennar er ókom- in enn. Eftir beiðni eins fjelagsinanns kaus stjórn fje- lagsins í marz 1913 tvo menn til þess að segja álit sitt um nokkur atriði í deilumáli milli hans og bæj- arstjórnar. Voru kosnir til þess Sig. Thoroddsen og Geir Zoega. 5. Félagaskrá Ásgeir Torfason, cand. polyt., efnaverkfræðingur. Renedikt Jónasson, bæjarverkfræðingur. Forberg, O., ritsímastjóri, r. af dbr. Jessen, M. E. vjelfræðiskennari, vjelaverkfræðingur. Jón ísleifsson, verkfræðingur. Jón Þorláksson, cand. polyt., landsverkfræðingur. Ivirk, N. P., cand. polyt, verkfræðingur. Krabbe, Th. H., cand. polyt., landsverkfræðingur. Á árinu 1913 var slofnuð lestrarstofa, þar sem geymd eru þau tímarit sem fjelagið eignast, ásamt. nokkrum bókum, er fjelaginu hefur verið gefið. A 9. fundi fjelagsins var eftir beiðni nokkurra manna einn maður kosinn til þess að taka þátt í undirbúningi fyrirhugaðs heimilisiðnaðarfjelags. Var til þess kosinn Th. Krabbe. Á 10. fundi gaf hann skýrslu um þennan undirbúning og lagði fram lög fjelagsins. 1. janúar 1914. Rögnvaldur Ólafsson, byggingameistari. Smith, P., simaverkfræðingur. Thoroddsen, Sig., cand. polyt., verkfræðingur, adjunkt við mentaskólann. Zimsen, K., cand. polyt., verkfræðingur. Zoega, Geir G., cand. polyt., verkfræðingur. Þórarinn Kristjánsson, cand. polyt., verkfræðingur. Allir í Reykjavík.

x

Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands
https://timarit.is/publication/404

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.