Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands - 01.01.1914, Page 8

Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands - 01.01.1914, Page 8
8 veggnum. Með þessu hepnaðist að fá botninn alveg sljettan. Síðan var steyptur stöpulkassinn þannig: Pallur, niðri undir vatnsborði hengd- ur upp í 8 skrúfum úr l1/8 þml. járni; stólparnir undir efri bitana settir sumir á sponsvegginn, en sumir i botn innan við liann. Kass- inn sjest á 2. mynd og var 2.30 m að hæð. Hann var allur járnbentur. 8 dögum eptir að iokið var að steypa hann, var liann skrúfaður niður unz liann flaut á vatninu inn- an í sponsveggnum, og risli þá um 1.0 m. Þá var pallurinn tekinn und- an honum, og steypt lag ofan á all- an botninn. Nokkru áður en kassinn var kominn til botns var honum sökt með því að fylla liann með vatni, til þess að prófa hvort hann settist án þess að hallast. Hann sat alveg rjettur, og var þá vatnið tæmt úr honum aptur, kassinn fylltur með grjótsteypu og síðan hlaðinn stöpull- inn ofan á. Öll hæð stöpulsins frá botni er 5.2 m. Áformað var að gera eystri mið- stöpulinn á sama hált, en þegar tii kom reyndist ekki hægt að grafa þar dýpra niður en 1.6 m. Með því að straumur og vatnsdýpi er þar lítið, afrjeð jeg þá að steypa fyrst lag í botninn gegnuin trekt, og tæma síð- an vatnið innan úr sponsveggnum. Steypulagið var gert V2 meter að þykt, og síðan var dælt valninu úr kass- anum. Botninn var þá þjettur, og sponsveggurinn sömuleiðis, en á einni hliðinni kom vatn upp með- fram sponsveggnum. Ástæðan til þess var sú, að þar hafði þess ekki verið gætt, að færa trektina með- fram hliðinni. Síðan var stöpullinn hlaðinn upp. í kringum stöplana var sett grjótfylling. Vestri sponsveggurinn var tekinn upp, en sá eystri náðist ekki, og varð að láta sjer nægja að saga ofan af honum. Að utan voru stöplarnir »rauf- aðir«. Sementshúð um brúarstöpla hefur reynst mjög illa (Þjórsá, Ölf- usá o. 11.) 3. Yfirbyggingin. Lengd brúar- innar er 92 m akbreiddin 2,6 m. Aðalbjálkarnir eru Geberbjálkar með hjöltum í enda- bilunum, allir jafnháir með W-grind; reiknuð hæð 3,0 m, stafgólfslengd mismunandi frá 2,75 m til 3,625 m. Miðbjálkinn er 40 m að lengd, nær 5,5 m út yfir hvorn miðstöplanna, og liefur fast sæti á öðr- um en hreyfanlegt plötusæti á hinum. Endahjálkarnir 2. mynd. hvíla á föstum sætum á endastöplunum, og hanga í fjöðrum (fjaðrahjölt) á endum miðbjálkans. Yfirbyggingin var smiðuð í brúasmiðju vegagerð- anna í Reykjavík, og var þetta liin fyrsta af stærri brúm, sem smíðuð var þar, en áður höfðu verið siníð- aðar þar allt að 24 melra langar brýr með litlum verkfærum. Nú höfðu verið fengin nokkur áhöld, og

x

Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Verkfræðingafjelags Íslands
https://timarit.is/publication/404

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.