Afturelding - 01.06.1971, Blaðsíða 10

Afturelding - 01.06.1971, Blaðsíða 10
Islendingarnir á lledmarkstoppen. VaT það 'haldið á Hedmarkstoppen, Hamar í Nor- egi, 2.—8/8. - 1971. Til mótsins var 'boðað af norsknm Hvítasunnumönnum. Aðalhvatamenn voru dr. Emanuel Minos og Martin Skí ritstjóri við „Verdens Gang,“ Oslo. Lögð var áherzla á að öll Norðurlöndin sendu fulltrúa sína á mótið. Það varð, og því blöktu alla daga mótsins, krossfánar 6 Norðurlanda yfir móts- istaðnum. Mi'kið fjölimenni var á rnótinu, kringum 2500 manns. Laugardaginn 81. júlí fóru með Loftloiðaflugvel til Oslo 5 í'slenzkir þátttakendiur: Ásgerður Guðna- dóttÍT og Gísli HalIdórsson úr Hafnarfirði, Willy Hansen, Páll Axelsson og undirritaður, frá Reykja- vík. Eftir mjög góða ferð yfir hafið, var lent i Oslo og tóku þar á móti okkur dóbtir Roalds Ringstad forstöðumanns í BeTÖa-söfnuðiinum í Oslo og frú Ase Minos. Þegar fyrsta kvöldið tókum við þátt í samkomum i Beröa og svo tveim samkomum daginn eftir, sein var sunnudagur. Þann dag heimsóttum við Signe Áðbö, som er ekkja Eriks Ásbö, braut- ryðjanda Hvítasunnu'starfsins á Islandi. Einnig beimsóttum við legstað Erilks Ásibö og höfðum þar minningarstund, áhrifaríka og blessaða og tóku þátt í 'henni auk okkar frá Isllandi mæðginin Bjarne og Signe Ásbö. Næsta dag sem varmánudagur var farið að Hamri. Leiðin er um tveggja klukkustunda aikstur um fögur og blómleg béruð. Njóta þau sín því betur, þar sem skógur er ekki svo Iþéttur að hanm skyggi á, eins og viða er í Skandinaviu. Á leiðinni blöstu við kunnug nöfn frá spjöldum sögunnar, eins og Eðsvöllur, gata Ölafs Tryggvasonar o. fl. Móttökur voru með miklum ágætum á Hedmarks- toppen, en það landssvæði keyptu Hvítasunniumenn fyrir nokkrum árum og gáfu fyrir röskar 8 miljónir króna í núverandi mynt. Þar hofur verið byggður glæsilegur skóli og annar er á byggingu, sem gegnir svo blutverki gistihúss á sumrum. Hedmark-hallen, mikið sam'komubús sem rúmar 2500—3000 í sæti og stæði. Það er notað til 1 oikfimiskennslu á vetnim. Svo bafa verið byggð urmull af litlum sumarhúsum, með svefnplássi fyrir 5 manns, þannig að hægt er að taka á móti nokkrum þúsundum mannna og virðist allt ganga með ágætum vel, bæði með mat, Iþrifnað og ýmsa fyrirgreiðslu. Urð- um við íslendingarnir vottar að því, er viðkom ökkur, og eins er við litum til annarra. Sýnir það gott skipulag og aðlögunarlhæfiiledka frænda okkar, Norðmanna, sem rcyndust í öllu hið bezta. Til mótsins var efnt t'il að au:ka 'kynni og skiptast á skoðunum og svo að styrkja samstöðu norrænna Hvítasunnumanna. Fulltrúi frá ihverju Norðurland- anna hélt einn Bibliulestur á dag. Allir voru þeir um söfnuð Guðs nú á dögum, í Ijósi frumkristn- innar. Fyrsta morguninn italaði Sven Jonasson frá Svíjijóð, þá David Klementz frá Finnlandi, Alfred Lorentisen frá Danmörku og Síðast Einar J. Gísla- son frá íslandi. Þegar minnzt er á ræðumenn i þessu móti, en þeir voru margir og góðir, þá mun þó eftirminnilegastur verða Lewi Pethrus frá Svfþjóð, er talaði þarna a. m. k. á 5 samkomum við mikla athygli og aðsókn. Hvar sem bann gekk og 'fór, þá var honum fylgt eftir af kviikmyndatökumönnum frá sænska sjónvarpinu. 10

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.