Afturelding - 01.06.1971, Síða 15
NOKKRAR MÍNÚTUR MEÐ LEWI PETHRUS.
Pá!l)l pos'tuli sagir í (2. Tím 4,8.):
„Og nú er mér geymdur sveigur réltlœtisins, sem
Drottinn mun gefa mér á þeim degi. Hann, hinn
réttláti dómari, en ekki einungis mér, heldur og
öllum, sem clskaö hafa opinberun lians.“
Hér getur þú séð sjálfa driffjöðrina í eftirvænt-
ingu liinna kristnu. Eftirvæntingin birtist í hinu
ytra, en sjálf driffjöður eftirvæntingarinnar er kær-
leikurinn. Við elskum að iheyra um endurkomu
Krists. Og Ihvensvegna? Jú, vegna þess, að við elsk-
um Jesúm. Hugsaðu þér, að þú hafir fengið boð
frá einhverjum, sem þú he'fur ekki elskað, að hann
ætli að vitja þín. 'Hvernig Ibregzt þú við? Þú gerir
alls ekkert og reynir að komast hjá því að taka
á móti honum.
Ég heyrði eitt sinn frásögu af ríkum manni, sem
fór í heimsókn til fátækrar fjölskyldu með gjafir.
Húsmóðirin var ein heima með börn sín. Hún bað
börnin að hafa hljótt um sig, og opnaði ekki fyrir
gestinum, þVí að 'hún hélt að það væri húseigand-
inn að krefja hana um húsaleiguna, og hún átti
enga peninga lil. — Hún hugsaði að einhver stæði
fyrir utan, sem ætlaði að krefja hana einhvers,
í stað þess að það var vinur, sem stóð fyrir utan
imeð gjafir, sem hann vildi gefa þeim.
Þetta sýnir hvernig sá bregzt við, sem ekki á
von á góðu. Þetta er dæmi um syndarann, sem
bíður dómarans — sem kemur til að krefja hann
um skuld. Það sem þú átt að gera, er að opna
fyrir Jesú og gjöfum 'hans. Gerir þú það, getur þú
beðið eftir honum sem vini, sem þú elskar.
, Hve undursamlegt að mega elska Jesúm, og treysta
honum, sem við höfum þó ekki séð. Hugsaðu þér
nú allar milljónirnar, sem ekki hafa séð hann, en
hafa samt elskað hann. Þeir hafa jafnvel gengið
í dauðann hans vegna. Hve undursamlegt fyrir þá
síðan, að fá að sjá hann! Ekki er undarlegt að
þeir þráðu þennan dag. — Við elskum endurkomu
hans, vegna þess að við elskum hann.
Vinur minn, elskar þú Jesúm? Lifir þú í glóð
fyrsta kærledkans? Þá getur þú verið viss um að
þú ert 'brúðarsál, því að 'þá elskar iþú endurkomu
hans. Biðjum Guð að hann fylli okkur kærleika
sínum, svo að við væntum komu Frelsara okkar.
Ekki aðeins vegna þess að við sjáum það í Orðinu
að hann kemur aftur, heldur vegna þess að við
berum persónulegan kærieika til hans.
í 1. Péturs br. 1, 6, 7 lesum við:
„Þá munuö þér fagna, þótt þér nú um skamma
stund, ef svo verdur að vera, hafió hryggzt í margs-
koíiar raunum, til þess að trúarstdðfesta yðar,
langtum dýrmœtari en forgengilegt gull, sem þó
stenzt eldraunina, geti orðið yður til lofs og dýrðar
og heiSurs við opinberun Jesú Krists.“
Þarna sérðu enn eitt auðkenni á brúði Krists —
neyð og raunir. Það hefur ávallt einkennt sanna
15