Muninn

Årgang

Muninn - 29.10.1987, Side 4

Muninn - 29.10.1987, Side 4
A döfinni —Pistill frá Sigrúnu formanni Agætu skólafélagar! Þessi stutti pistill er til þess skrifaður að kynna fyrir nemendum hvað það er sem er helst á döfinni í félagslífinu á næstunni, auk þess sem ein- stök félög innan nemendafé- lagsins hafa upp á að bjóða. Fyrir stuttu síðan barst okkur bréf frá Ríkisútvarpinu Sjónvarpi þar sem okkur býðst að sjá um okkar eigin sjónvarpsþátt. En þar sem best er að þið lesið bréfið sjálf heldur en að farið sé að telja upp hvað í því stendur þá hef ég ákveðið að birta bréfið hér: Við í stjórninni höfum ákveð- ið að reyna með hjálp ykkar nemenda að taka þátt í þessu og gera verulega góðan og vandaðan þátt. En til þess að svo verði verðið þið að vera verulega frjó í hugsun og virk, því það er hægara sagt en gert að gera góðan sjónvarpsþátt. Efnisramminn sem RÚV sendi okkur var á þessa leið: tónlist, skáldskapur, kvik- myndagerð, leiklist, mynd- list, sérvitringafélög, íþróttir, kynning á skólanum og dans. Við óskum þvi eftir hug- myndum til að framkvæma eitthvað af þessum efnisþátt- um. Þessi efhisrammi er alls ekki bindandi svo einnig má fólk koma með sínar eigin hugmyndir. Sniðugt væri fyrir einstök félög að útbúa eitt- hvað í þáttinn. En verið endi- lega dugleg að koma með hug- myndir, við erum alltaf til við- tals þegar hægt er að ná í okkur. Við vitum ekki hvenær kemur að okkur að hafa þátt- inn en þetta verður kynnt betur síðar. Ákveðið hefur verið að vekja upp annálaritun sem var við lýði hér fyrir 20 árum síðan. Annálaritari skal fylgjast með félagslífi vetrarins og punkta niður það helsta sem fram fer og svo er það fært inn í annála- bókina, Rúnu, sem til er hér. Einnig kom sú hugmynd upp að gera nýja Rúnu og þá mætti einnig taka myndir af ýmsum atburðum og láta þær fylgja henni. En fyrst og fremst þarf að fá einhvern til að taka verk ið að sér. Þess vegna óskum við eftir annálaritara. Ef einhver hefur áhuga á því starfi, ætti hann eða hún að hafa samband við okkur í stjórninni sem allra fyrst. Einnig þiggjum við uppá- stungur um annálaritara. Ef engar uppástungur eða um- sóknir koma verðum við að skipa sjálf annálaritara skólans. Ýmislegt annað er auðvitað á djöfinni hjá okkur sem ekki er alveg fullmótað en af því fáið þið fréttir síðar. Lifið heil. Formaður Hugins _________________________-SJÓNVARF LaiiRnvcgiir I7fi, 10j ncykjnvik. Simncfni: Itri'ion, Simi 38800, Tclex: 2035 Til Nemendafélags, Reykjavik 22.9 '87. Sjónvarpið hefur ákveðið að hleypa af stokkunum nýjum, vikulegum, þætti sem’á að bófða til ungs fólks. Þessir þættir verða unnir I samvinnu við framhaldsskóla landsins og fær hver skóli tækifæri til að búa til sinn eigin þátt, sem takmarkast þó af þeim efnisranma sem Sjónvarpið leggur fram. (Meðfylgjandi) Þessi ramni er þó á vissan hátt sveigjanlegur. Hver skóli hefur frjálsar hendur um hvaða atriöi hann velur og svo kemur vitaskuld til greina að raeða hugmyndir um önnur atriði 1 þáttinn. Hver þáttur er 25 mín. að lengd og takmarkast val atriðanna við þann tlma. Fastur umsjónarmaður verður að þessum þáttum. Hlutverk hans er að vera I nánu sambandi við nemendafélög skólanna, xondirbúa og skipuleggja þættina roeð þeim og upptökustjórum. Mikilvægt er að nemendafélagið kynni þetta verkefni vel fyrir neraendum og sjái til þess á hlutlausan hátt, að hæfileikafólk innan skólans veljist til að vinna að atriðum þáttarins. Með því að bjóða framhaldsskólunum að sjá um sína eigin þœtti I Sjónvarpinu, vonumst við til þess að útkoman verði liflegir og skemmtilegir þættir þar sem nemendur fá að njóta sín og helstu einkenni hvers skóla skíni í gegn. Hugmyndin að baki þáttanna er þvi i stuttu máli að etja saman framhaldsskólum landsins eins og um væri að ræða einhverskonar keppni I metnaðarfullri og vandaðri dagskrár- gerð fyrir sjónvarp. Sendið okkur staðfestingarbréf með nöfnum og slmanúmerum tveggja tengiliða úr ykkar hópi, fyrir 2. október 1987. merkt: FRAMHALDSSKÓLAÞÁTTUR/SJÖNVARPINU LAUGAVEGI 176. 105 REYKJAVÍK. ‘^VI hdl. Ý vo ‘jMuw J^n Egiíl Bergþóréfeon Gisli Srar Erlingsson uppcökuscjöri. uppcökuscjóri. HÍKISÚTVARPID

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.