Muninn - 29.10.1987, Page 11
Félögin okkar
Eftir félagakynninguna í Möðruvallakjallara 8. okt. s.l. fór Muninn á stúfana og ræddi við
fulltrúa þeirra félaga sem þar kynntu starfsemi sína. Viðtölin fara hér á eftir:
MFH
Málfundafélag Hugins
Kristján Ingimarsson
Hvað gerir þetta málfundafélag?
Það þjálfar fólk í ræðumennsku og framsögn og heldur keppni og bekksagnamót og er með alls
kyns uppákomur. Við tökum þátt í MORFÍS.
ÍMA
íþróttafélag Menntaskólans á Akureyri
Sveinn Rúnar Ifaustason
Hvað gerir ÍMA og hvað er ÍMA?
Já, ÍMA er íþróttafélag Menntaskólans á Akureyri og við höfúm á okkar könnu flestallar íþróttir
sem stundaðar eru hér í skólanum, nema skák og þessar hugaríþróttir.
I hverju er starfsemi ykkar fólgin hérna í vetur og hvernig skipuleggið þið starfsemina?
Ehm, ja, starfsemin er í því fólgin að við keppum við ýmsa skóla, sem sagt íþróttakeppni milli
menntaskóla og fjölbrautaskóla. Innan skólans verða svo bekkjamót og bekksagnamót og við
höfum á okkar könnu jafnvel þjálfun skólaliða.
Það er því mjög hollt fyrir sérhvern að starfa með ÍMA?
Já, ég mundi segja það.
11