Heimilisblaðið - 01.06.1939, Blaðsíða 3
6.-7. blað
Júní-Júlí 1939
Einkunnarorð:
»Sjáið, hverju Guð hefir til
vegar komið*.
Fyrsta símskeyti Morse.
Morse um 1832.
Myndin t. h.: Frumritsíminn.
1. Ætt og uppvöxtur Morse.
Morse var fæddur í Charlestown í Mass-
achusetts í Bandaríkjunum 27. apríl 1791.
Faðir hans, Jedidiah Morse (1761—1826),
hafði gert landafræði að aðalnámi sínu á
Yale-háskólanum. En sökum þess að hann
var áhugamaður í trúarefnum, þá var hon-
um leyft að prédika (1785) og seinna var
hann settur inn í
prestsembætti í safn-
aðarkirkjunni í Char-
lestown. Hann varði
mestum hluta æf i
sinnar til að verja
rétta trú í söfnuðin-
um í Nýja-Englandi
gegn þrenningarneit-
endum (Únítörum).
Hann barðist djarf-
lega gegn öllum
ókirkjulegum skoðun-
um í trúarefnum og
bakaði sér með því
harðar árásir af
hendi frjálshyggju-
manna. Hann var
fremur heilsuveill maður og þoldi ekki
til langframa að standa í því stríði. —
Hann sagði af sér prestsskap 1820.
En eftir það fól stjórnin honum aö
vitja Indíána-flokka, sem bjuggu á norð-
urmærum Bandaríkjanna. Skýrsla um þá
för hans kom út 1823. Hann, hélt úti trú-
varnarblaði árum saman, ýmist einn eða
með öðrum, og sýndi frábæra staðfestu og
fastheldni við játningar kirkju sinnar.
Samúel fékk hið bezta uppeldi. Trú og
siðavendni voru þeir förunautar, sem
fylgdu honum úr föð-
urgarðli til Yale-há-
skólans. Þaðan út-
skrifaðist hann 1810.
Samúel Morse var
snemma hneigður til
prentlistar og drátt-
listar og hafði lagt
mikinn hug á þær
íþróttir í skólanum og
jafnvel myndhögglist
líka. Að loknu skóla-
námi fór hann til
Englands (1811) með
málaranum Washing-
ton Allston til að
frama sig þar í prent-
listinni undir hand-
Morse símar nafnið sitt á hátíðinni 1871 til flestra
borga í Bandaríkjunum,
Bjarni Jónsson:
Samuel F. B. Morse