Heimilisblaðið - 01.05.1955, Qupperneq 34
KALLI OG PALLI
,^J
B. 80* o Cop«nhogeg^«
Kalli og Palli hafa boðið dýrunum til miðdegisverðar og lofað að gefa þeim ráuðsprettu. En Palli fékk
enga rauðsprettu í fiskbúðinni og kemur nú heim með fulla körfu af síld. Það er því ekki um annað a®
ræða en renna síldinni gegnum þvottavinduna. Með því móti verður hún flöt og lík rauðsprettu. SíðaI1
steikir Kalli síldina, og um kvöldið, þegar dýrin koma, hrósa þau þessari ágætu rauðsprettu á hvert
reipi og hafa ekki hugmynd um, að þau eru að borða pressaða síld.
Palli fór til bæjarins að kaupa egg, en allt í einu hrasar hann um stein, svo að eggjakarfan dettur
eggin mölbrotna. Kalli verður fokvondur, þegar Palli kemur heim með tóma körfuna, og húðskamrá®
hann. En þá tekur Palli sparigrísinn sinn og segist skuli kaupa svo mikið af eggjum, að þau dugi áru^
saman, og skömmu síðar kemur hann aftur með lifandi hænu, sem er hreint enginn ónytjungur, því 8
hún verpir strax fjórum eggjum.