Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1931, Qupperneq 33
iÐUNN
Islenzk kirkja og trúarbrögð.
27
finnur hún Jrað, sér til mikillar skelfingar, að sá ungi
maður er að taka hjarta hennar frá Jesú. Með öðrunt
orðum: þeir berjast um ást hennar. — Og ekki er ég
í neinum vafa um fiað, að pað er ekki tilviljun ein, að
með lúterskum sið fer það saman, að dýrkun Maríu
meyjar legst niður og hjónabandið innleiðist í presta-
stéltina.
bessi tilfinning lotningar, hrifni og tilbeiðslu kemur
mjög við sögu trúarbragðanna, en ég sé ekki, að hún
geti heitið einn páttur þeirra. Hún á oft þátt í uppruna
þeirra. Hún kveikir í ímyndunaraflinu, svo að fram
koma ákveðnar skoðanir um hið hulda. Þegar búið er
að slá þeirn skoðunum föstum af flokki áhangenda og
þaö er skoðað sáluhjálparskilyrðd að aðhyllast þær, þá
eru ný trúarbrögð í heiminn borin. Og innan þessara
trúarbragða lifir tilfinningin áfram í tilbeiðslu á þeim
guðdómi, er þau boða, og lotningu fyrir kenningum
þeirra og helgivenjum. En þannig er það . að eins i
hrjóstum sumra þeirra, er trúarbrögðunum tilheyra.
Aðrir tilbeyra þeim af hagfræðilegum ástæðum. Viöur-
kenning ákveðinna kennisetninga og iðkun ákveðinna
helgisiða er þeim ekkert annað en uppfylling nauðsyn-
legra skilyrða til að ávinna sér hylli guðs og njóta hjá
honum ákveðinna hlunninda. Og þess ber mjög vel að
gæta, að þeir menn, sem þessa afstöðu hafa til trúar-
bragðanna, eru venjulega hinir eiginlegu forverðir
Þeirra og verndarvættir.
En í sögu trúarbragðanna er það hrifnin og til-
heiðsluþráin, sem þau eiga í þyngstri og erfiö,astri
baráttu við. Hún er ímynduninni sífelt nýr aflgjafi. Hún
kveikir hatur gegn kenningafjötrunum, og hún er á
bak við flestar árásir, sem trúarbrögðin mæta. Hún er
aflgjafi rannsókna og nýrra hugmynda, sem trúarbrögð-