Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1931, Blaðsíða 57
IÐUNN
Hvað veldur kreppunni?
51
Að fara þessa leið hefir þann kost, að til þess þurfa
engar opinberar ráðstafanir. Pað er ekkert annað en að
láta alt afskiftalaust, svo fellur vöruverÖið af sjálfu
sér. Ofyrkja hefir æfinlega verðfall í för með sér, ef
ekki er að gert.
ÞaÖ ætti hins vegar að vera full-ljóst, að hin Ieiðin,
með sjálfvirkri hækkun vinnulaunanna, er miklu heppi-
legri heldur en að láta raungildi launanna stíga í skjóli
verðfalls.
Lækkandi verðlag hefir sem sé ávalt í för með sér
deyfð í viðskiftalífinu og þverrandi framleiÖslu. Á
meðan vöruverðið er að falla, reyna allir: framleiðend-
ur, heildsalar, smákaupmenn og neytendur að minka
birgðir sínar með því að kaupa sem allra minst. Og
þetta kaupfall hefir lamandi áhrif á alt atvinnulíf. Ein-
stakir framleiðendur kornast í vandræði og gripa til
launalækkunar til þess að draga úr framleiðslukostn-
aðinum. En með því er atvinnulífið komiö inn í mjög
háskalega hringrás. Frjálsa samkeppnin gerir það að
verkum, að hver einstakur framleiðandi er næstum
aeyddur til aö f.ylgjast með keppinautum sínum í öllu
því, er miðar til að draga úr framleiðslukostnaðinum;
annars verður hann undir í samkeppninni. Launalækk-
un hjá einu atvinnufyrirtæki hlýtur því oftast að draga
á eftir sér sams konar lækkun ekki einungis hjá öðr-
nnr fyrirtækjum í sömu atvinnugrein, heldur einnig í
öðrum greinum, sem kunna að vera hinum nákomnar
eða að einhverju háðar. Með þessum launalækkunum er
Svo spilt sölumöguleikum allra annara framleiöslu-
g^reina, svo einnig þær verða að minka framleiðslu-
^ostnað sinn með enn þá nýjum launalækkunum. Niöur-
staðan verður hnignun á öllum sviðum framleiðslu og