Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1931, Síða 103
IÐUNN
Bækur 1930.
97
sæmilega. Og eitt hefir bók þessi fram yfir eldri söguágrip:
ir.eiri rækt er þar lögð við að skýra þróun atvinnulífsins í
landinu. Er slíki góðra gjalda vert og fátt vænlegra til að
ná réttum skilningi á atburðum sögunnar. Ég las bókina
með ánægju og pótti hún skenrtilestur, en svo er að skilja
sem höf. búist sízt af öllu við, að hún sé það.
Frá sömu hendi er komið Ársrit Nemendasum-
b ands Laugaskóla, 5. ár. Ársrit þetta liefir frá því
fyrsta verið mjög læsilegt, og er svo enn. Að þessu sinni
er það að miklu leyti helgað minningu Völundar Quð-
mundssonar (Friðjónssonar) frá Sandi, bráðefnilegs manns,
sem dó um aldur fram. Völundur heitinn á þarna langa og
merkilega ritgerð ásamt fleiru, og hinn aldni greppur yrkir
viðkvæm erfiljóð eftir son sinn, er mun hafa verið honurn
mjög kær.
Nýstofnað Bókmentafélag jafnaðarmanna gaf út á liðnu
ári mikla bók: Brotið land eftir Maurice Hindus, er
Vilmundur Jónsson læknir hefir þýtt. Er hún um bændalíí
í Rússlandi eflir byltinguna. Höf., sem er amerískur blaða-
maður og rithöfundur, ól æskualdur sinn í rússnesku sveita-
þorpi fyrir heimsstyrjöldins. Svo kemur hann aftur heim í
þorpið sitt eftir byltinguna — að því er næst verður kom-
ist um 1924—25, dvelur þar all-lengi og rilar svo bók sina
um það, sem ber honum fyrir augu og eyru. Bók þessi
gefur merkilega skýra mynd af lífi þessara bænda og hugs-
unarhætti. 1 sumum köflunum, eins og „Rauði rúðsmaður-
inn“ og „Annar Hamlet", fær lesandinn jafnvel að skygnast
'niður í undirdjúp þau í rússneskri þjóðarsál, sem valdiö
hafa höfuðsvima mörgum þeim, er lesa stórskáld Rússa.
Höf. tekur enga afstöðu til byltingarinnar, hvorki með né
móti, en hann gefur okkur lifandi hugmynd um það, hve
djúpt og róttækt plógur byltingarinnar hefir farið um rúss-
neska jörð, hvílíku feikna umróti þessir ægilegu atburðir
liafa valdið með þjóðinni. Um bændurna er sagt á einum
stað, að byltingin hafi gefið þeim raálið. Áður voru þeir
eins og sinnulausar, sofandi skepnur, „froskar á kafi í
forarleðju í úldnum stöðupolli“. Byltingin hefir rumskað
harkalega við þeim, vakið jiú til vitundar um manngildi sitt
og mátt. Nú eru jieir farnir að skeggræða um hlutina, og
margt óþvegið orð hrýtur þeim af vörum um ástandið. —