Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1931, Qupperneq 104
98
Bækur 1930.
IÐUNN
Bókin er, eins og áður er sagt, skrifuð fyrir nokkrum ór-
um, en ef þessi höf. skrifaði uin rússnesku bændurna í dag,
er ekki ólíklegt, að hann kæmist að dálítið annari niður-
stöðu — peirri sem sé, að nú væru bændurnir ekki að eins
vaknaðir og farnir að brúka munn, heldur teknir til starfa
í einbeittri alvöru, því eftir öllum fregnum að dæma stik-
ar þróunin risaskrefum í Rússlandi nú á dögum. — Bók-
mentafélag jafnaðarmanna hefir einnig gefið út A l m a n -
alc alp ýðu. Þar er meðal annars merkileg grein um trú-
arbrögðin eftir hinn fræga enska stærðfræðing og hcim-
speking Bertrand Russel, og hefir H. K. Laxness þýtt hana.
Ýmsar fleiri bækur hafa komið út á árinu. Menningar-
sjóður gaf út H ag f rœd i, fyrra bindi, eftir f ranskan
höfund, Charles Gide, í þýðingu Freysteins Gunnarssonar.
— Skrifstofa Alþingis sendi út Alpingis m a nnata I
1845—1930 með myndum flestallra alþingismanna á
þessu tímabili og helztu æfiatriðum. — Sigurdur Einarsson
skrifaði Áttliagafrœdi, sem ætluð er kennurum til
leiðbeiningar við barnafræðslu. — Ferðafélag Islands gaf
út Árbólt 19 30, prýðilegt rit, sem í lesmáli og myndum
lýsir Þingvöllum og leiðum þaðan. Er þetta þriðja árið,
sem Ferðafélagið gefur út þessa vinsælu Árbók.
Þá hefir komið út Skuggsjá, I—II eins konar
tímarit, sem eingöngu flytur erindi, dæmisögur o. fl. eftir
J. Krishnamurti. Útgefandi er frú Aðalbjörg Sigurðardóttir.
Veit ég ekki gjörla með hve mörgum bindum mr. Krishna-
murti hefir þegar auðgað íslenzkar bókmentir, en þau eru
ekki fá. Verður ekki með sanni sagt, að látið sé undir höf-
uð leggjast að veita Islendingum hlutdeild í boðskap heims-
fræðarans svo kallaða. Og ofan á alt þetta kvað svo vera
von á meistaranum í eigin persónu hingað út á hala ver-
aldar — og það ó þessu ári. Gefst mönnum þá bæði að
heyra og sjá. Væntanlega eru töfrar persónunnar meiri en
rithöfundarins, og vil ég þó á engan hátt gera lítið úr íit-
mensku Krishnamurta. Ég hefi bara ekki enzt til að lesa
nema nokkurn hluta af ræðum hans, dæmisögum og kvæð-
um.*) Á. H.
*) Síðan petta var skrifað, hefir það verið borið til baka, að Krishna-
murti komi hingað á þcssu ári.