Kirkjuritið - 01.06.1938, Page 12

Kirkjuritið - 01.06.1938, Page 12
Júni. 226 Sveinn Víkingur: áþreifanlega í ljós i deilum manna og unitali um þessi mál. Það er heldur ekki lausl við, að málvenjan sjálf villi liér sýn og rugli fyrir mönnum þvi, sem raunveru- iega er fólgið í orðinu trú. Venjulega þegar talað er um trú, þá er i rauninni alls ekki verið að ræða um trúna sjálfa, heldur um það sem trúað er, trúarkenningarnar, trúarlærdómana. trúarsannindin. Það er þetta, sem svo oft í daglegu tali er ranglega nefnt trú. I þessum ranga skilningi tölum vér um margskonar trú og nefnum liana ýmsum nöfnum, kristna trú, Bramatrú, Búddatrú eða Múhameðstrú, svo nefnt sé það allra algengasta, og eigum þá æfinlega við, ekki trúna sjálfa, Iieldur það sem trúað er, þau Irúfræðikerfi og þær kenningar, sem einkenna livert þessara trúarbragða um sig. Og af því að trúarlærdómarnir eru mismunandi og ólíkir, jafnvel hver öðrum gagnstæðir að ýmsu leyti, þá leiðir hinn rangi skilningur á orðinu trú einnig til þess, að vér för- um að tala um rétta trú eða ranga, eftir því hvernig oss falla lærdómarnir í geð. Þegar Búddatrúarmaðurinn til dæmis telur kristindóminn ranga trú, þá eru það trúarkenningarnar, sem liann á við en ekki trúin sjálf. A sama hátl telja kristnir menn Múhameðstrú ranga trú af þvi, að trúarkenningar hennar eru öðruvísi og aðrar en kenningar kristninnar. Túarkenningar og trú eru alveg sitt hvað, og má því aldrei rugla því saman. Trúarkenningarnar eru þau sannindi eða lærdómur, sem hinn trúaði maður trúir eða treystir á, og þær kenningar eru misjafnar i liinum einstöku trúarbrögðum. En trúin er hæfileiki eða hneigð í mannsbrjóstinu sjálfu. Til þess að skýra þetta nánar getum vér tekið aðra tilfinningu eða hneigð náskylda trúnni. Það er ástin. Ástin er ekki það sama og það sem elskað er. Jafnvel þó vér í daglegu tali ruglum þessu tvennu oft saman. „Sofðu unga ástin mín“ lætur Jóhann Sigurjónsson Höllu í Fjalla-Eyvindi syngja við barnið sitt. Og mörgum manninum verður það, að nefna kon-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.