Kirkjuritið - 01.06.1938, Blaðsíða 28
Júní.
SÉRA ARNÓR ÁRNASON
í HVAMMI.
Nokkuru eftir audlát
séra Arnórs í Hvammi
var ég á ferð.um Skaga,
og hitti marga menn i
söfnuðum hans að máli.
Var sveitungum hans
þá tíðræddast um hann
og' það, hverning minn-
ingu hans yrði mestur
sómi sýndur og hún hezt
varðveitt. Séra Arnór átti
mjög óskifta hugi sveit-
unga sinna, enda var liann
athafnamaður í þágu
sveitarfélags sins, fremst-
ur í flokki í félagsmálum
þess og átti til skamms tíma gestrisnu höfðingsheimili
yfir að ráða.
Sér merki starfa hans margra, þegar farið er um Skaga
og Laxárdal. Prestssetrið bygði hann upp og ræktaði og
beitti sér fyrir ýmsum umbótum í vegagerð og brúar-
smíðum i sveit sinni.
Hitt er þó auðvitað fleirþættara, en það eru afskifti
lians af menningarmálum sveitar sinnar og héraðs.
Lét hann sér mjög ant um mörg mál, er til menningar
liorfa. í prestsstarfi sínu var honum sérlega ant uni
fræðslu barna. Og hann átti heimili, sem kunnugt varð