Kirkjuritið - 01.06.1938, Blaðsíða 31
Kirkjuritið.
Arnór Árnason.
245
samtökum manna. Þannig beitli hann sér fyrir kaupfé-
lags- og samvinnumálum; var formaður Kaupfélags
Skagfirðinga um skeið og vann því þá álit, er það var
illa komið fjárliagslega. Hann var einn af stofnendum
Slátursfélags Skagfirðinga og stjórnarformaður þess í
25 ár og alt til æfiloka. Hann sat lengi í sveitarstjórn og
var oddviti sveitar sinnar og sýslunefndarmaður auk
ýmsra annara starfa.
Þótti öllum slíkum störfum vel borgið í höndum hans,
því að hann var vandvirkur og gjörhugull, viðsýnn og
tillögugóður. Hann var hvorltveggja í senn, fastheld-
*mi á það gamla og þó hjartsýnn og framsækinn at-
hafnamaður á sviði félagsmálanna og vann fjölþætt æfi-
starf, sem lengi mun minst hér i Skagafirði.
Og þeim, sem kyntust séra Arnóri persónulega, mun
hann lengi minnisstæður. Hann var hár maður vexti
°g friður sýnum og mikilúðlegúr, eins og jieir Hafna-
menn fleiri. Hann var aðsópsmikill á mannfundum og
vel máli farinn og skóp sér ákveðna andstöðu eða fylgi.
Hálfvelgju átti hann ekki til, livorki í stjórnmálum né
öðru. Veit ég ekki, hvað því hefir valdið, að hann komst
ekki í fremstu röð stjórnmálamanna landsins. Hann
virðist þó hafa haft alt til að bera, að svo yrði.
Með séra Arnóri er hniginn einn af elzlu prestum
landsins, einn af höfðingjum jieirrar stéttar, einn þeirra
■nanna, sem góðan skerf hefir lag't fram i viðreisnar-
haráttu jijóðarinnar síðustu fimtiu árin.
Séra Arnór var fæddur i Höfnum á Skaga lö. febrúar
1860. Hann var elzta harn Arna Sigurðssonar hrepp-
stjóra í Höfnum og fyrri konu lians, Margrétar Guð-
niundsdóttur. Bjuggu jiau á því glæsilega höfuðhóli
V1® mikla rausn. Kom Árni sonum sínum til menta.
^éra Arnór lærðí undir skóla hjá séra Hjörleifi Ein-
arssyni á Undirfelli og lauk stúdentsprófi 1884 og em-
hættisprófi í Prestaskóla Islands 1886. Sama sumar