Kirkjuritið - 01.06.1938, Qupperneq 13

Kirkjuritið - 01.06.1938, Qupperneq 13
KirkjuritiS. Er trúin hégómi? 227 una sem liann ann ástina sína eða elskuna. En ástin sjálf, hún er livorki konan sem vér unnum eða barnið sem vér elskum, fremur en trúin er trúarkenningarnar, held- ur er ástin tilfinning í brjósti vor sjálfra. En eins og ástin beinist jafnan að einhverju sérstöku, hvort heldur l>að eru aðrir menn, ættland og óðal eða lmgsjónir og hugðarefni, þannig beinist einnig trúin í vissar áttir, verður trú á eitthvað, trú á sjálfa oss, á mátt vorn og megin, trú á aðra menn eða málefni og' trú á æðri verur, guði eða Guð. Nú geta verið mjög skiftar skoðanir manna um það, hvers virði það raunverulega sé, sem oss þykir vænt um. Það, sem ég elska heitast, kann þér að standa gjörsam- lega á sama um. Og ekki eru síður skiftar skoðanir um hitt, hvers virði þær trúarkenningar séu, sem menn trúa á og hafa trúað á á hinum ýmsu tímum. Um þær kenn- ingar má lengi deila og hefir löngum verið deilt Það, sem ég trúi heitast á og trevsti hezt, kann þér að virðast hégómi og fjarstæða. En trú og ást verða aldrei rétti- lcga metnar eftir því, livað menn elska eða hverju þeir h'úa. Það er ekki hægt að tala um rétta ást og rétta trú, eða ranga ást og ranga trú. Nei, vér verðnm að nota á þetta annan mælikvarða og aðra vog. Vér verðum að meta trúna cins og aðrar tilfinningar vorar eftir magni hennar og styrkleika. Trúin er þá ýmist mikil eða lítil, veik eða sterk. Þannig dæmdi líka Kristur um trúna. Hann talaði aldrei um rétta trú eða ranga, en lumn talaði oft um udkla eða litla trú. Af því, sem ég hefi nú tekið fram, vildi ég að öll- um vður mætti verða það ljóst, að trúin og trúarkenn- iugarnar eru alveg sitl hvað, og að þessu tvennu má ekki blanda saman. Trúin er á sama hátt og ástin til- finning mannshjartians, hneigð, sem þó ávalt beinist uð einhverju sérstöku, þvi sem vér elskum, eða því sem vér trúum á. 1 raun og veru eru trú og ásl náskyldar og fylgjast

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.