Kirkjuritið - 01.06.1938, Síða 29

Kirkjuritið - 01.06.1938, Síða 29
KirkjuritiS. Arnór Árnason. 243 að höfðingsskap, gestrisni og greiðasemi. Heimili prests i sveit er merkilegur þáttur í starfi lians og ekki sá þýðingarminsti, einkum þar sem messur verða fáar sök- um fólksfæðar og anna, því að þá bætir það upp skort á kynnum við ýms önnur störf prestsins, messur og em- hættisstörf. Heimili séra Arnórs á Felli í Kollafirði, þar sem hann var prestur fyrstu 18 árin, varð víðkunnugt. Stefán skáld frá Hvítadal minnist þess i ritgerð í „Ið- unni“ XI. árg. á þessa leið: „Var staðurinn á Felli á dögum séra Arnórs Arnasonar viðfrægur að rausn og' góðgerðum. Fell har hátt í þá daga“. Kendi séra Arnór þá ungum mönnum undir skóla, en margir unglingar dvöldu hjá honum árum saman. En kona hans, frú Stefanía Sigríður Stefánsdóttir, var mentuð kona og listhneigð. Tók hún ungar stúlkur lil náms. Var þá fjölment heimili á Felli, en auk þess tók séra Arnór þá strax þátt í málefnum sveitarinnar. Frú Stefania andaðist eftir 7 ára hjónaband árið 1893. Ari síðar kvongaðist séra Arnór Ragnheiði Eggerts- dóttur, Stefánssonar Eggerz. Var hún einnig mesta merkiskona. Sigurður Sigurðsson frá Vigur segir um hana í eftirmælum eftir séra Arnór: „Hún var framúr- skarandi góðhjörluð og nærfærin við þá, sem sjúkir voru og lasburða. Var það ósjaldan, að prestskonan í Hvammi var utan heimilis, hjúkrandi sjúkum víðsveg- ar i prestakallinu“. Séra Arnór var sjálfur mjög' ljúfur á heimili og góður lieimilisfaðir fjölskyldu sinni og hjúum. Tók hann slikri trygð við fólk, sem hjá honum var, að liann hafði orð á því einhvern tíma á efri árum sínum, að aldrei hefði neinn farið svo hurt af sínu heimili, að hann sæi ekki eftir honum. Þegar sv'o þar við bættist, að presturinn var ráð- hollur þeim, sem til hans leituðu, og að liann var mjög oeigingjarn og slórvirkur í störfum fyrir sveit sina, en greiðvikinn og hjálpsamur þeim, er áttu bágt, þá

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.