Kirkjuritið - 01.06.1938, Page 33
Kirkjuritið,
SÉRA ÓLAFUR MAGNÚSSON
JÚBILPRESTUR.
Sunnudaginn 22. f. m. voru liðin 50 ár frá því er séra
Ólafur Magnússon vígðist prestur að Sandfelli í Öræf-
um, og iiefir hann síðan gegnt prestsstarfi öll þessi ár
óslitið. Þessa var minst þá um daginn við guðsþjónust-
una í Kotslrandarkirkju, og sóttu hana biskup lands-
■ns, margir prestar og fjöldi sóknarfólks. Prófasturinn
prédikaði sjálfur og var fyrir altari, en á eftir sté hisk-
np í stólinn og mintist starfs júbílprestsins. Eftir messu
fóru margir kirkjugestanna að Arnarbæli og nutu
lengi alkunnrar gestrisni og höfðingsskapar prófasts-
ójónanna. Voru þar enn ræður fluttar og m. a. getið
þess, hversu vel frú Lydia hefði stutt dáðrikt starf
manns síns um hálfa öld.
Þau hjónin áttu gullbrúðkaup síðar i vikunni, þá hélt
safnaðarfólk þeirra þeim veglegt samsæti og gaf þeim
vinargjafir. Kirkjuritið árnar þeim heilla og blessunar.