Kirkjuritið - 01.06.1938, Qupperneq 37

Kirkjuritið - 01.06.1938, Qupperneq 37
KirkjuritiíS. Innlendar fréttir. 251 Bjarnasonar, þar seni hann gerði fyrst heyrinkunna hugmynd sína, og liafa væntanlega margir lesið hann. Þá hafa sjálfsagt ýmsir lesenda vorra hlustað á útvarpserindi séra Björns O. Björnssonar um málið í fyrra haust. Ymsir kirkjulegir fundir hafa tjáð sig hlynta málefninu og nú á síðasta héraðsfundi Kjalarnesprófasts- dæmis var stigið spor, sem væntanlega markar upphaf nýs og þroskameiri þáttar í sögu málsins, með stofnun „Félagsins Vida- lins klaustur í Görðurn". Meðal stofnendanna eru vígslubiskup herra Bjarni Jónsson, borgarstjórinn í Reykjavik Pétur alþing- ism. Halldörsson, fyrv. borgarstjóri Knud Zimsen, Matthías Þórð- arson fornmenjavörður, Jens Bjarnason (höfundur málsins), Ás- mundur Guðmundsson prófessor, séra Björn Magnússon dósenl, Sigurgeir Gislason í Hafnarfiði, séra Halldór Jónsson á Reyni- völlum, Jóhannes listmálari Kjarval, Jochum Eggertsson rithöf- undur, séra Björn O. Björnsson, séra Garðar Svavarsson, Sigur- björn Einarsson fil. cand., Sigurbjörn Þorkelsson kaupmaður, Ólafur Ólafsson kolakaupmaður, Eyjólfur Einarsson í Keflavik og Signnmdur Sveinsson. Sumir þessara manna voru að vísu ekki á héraðsfundinum. — Félagar ráða sjálfir árstillögum sínum og eru þau flest, enn sem komið er, frá 2 og upp í 10 krónur, en þess er eindregið óskað, að menn, karlar og konur, sem eru mál- efninu hlyntir, en telja sér eðlilegra með tilliti til ástæðna sinna að greiða minna en 2 krónur, láti það ekki hamla sér frá þvi að gerast félagar, heldur skipi sér í fylkinguna með sitt krönutillag; það mætti altaf færa sig upp á skaftið, ef að ástæður yrðu hag- feldari. Ekki ætti heldur að' vera neitt þvi til fyrirstöðu, að efna- menn, er telja málefnið líklegt til þjóðþrifa, skrifi sig fyrir meira en 10 kr. árstillagi. Annars er auk hinna föstu árstillaga gengið út frá aukaframlagi af hálfu manna, er finna sig kallaða til þess. Pegar fyrir stofnun félagsins hafði fjörgamall bóndi á Vestfjarða- kjálkanum gefið 100 kr. til málefnisins og stofnað með því sjóð þess. Guð launi honum það! Aðrar 100 kr. gaf maður nokkur félaginu við stofnun þess og nefndist sá „Leiðólfur". Smávegis kostnaður af félagsstarfimi hefir verið greiddur úr vasa áhuga- nianna. Enda er svo ákveðið í stofnskrá félagsins, að föst árstil- 'ög og jafnvel almenn aukaframlög megi ekki snerta nema til beinna framkvæmda á sjálfu málefninu, m. ö. o. ekki til að standa straum af rekstri félagsins. Verður fé til hans því að koma ■sem framlag áhugamanna í hvert sinn eða með einhverjum þvi- líkum hætti. Með þessu lagi er trygt, að árstillög og almenn auka- framlög gangi beint til hinnar væntanlegu stofnunar og misfarist ekki hið allra minsta í vafasaman fyrirgreiðslukostnað. En félag- inu ætti ekki að vera fjárvant fyrir því til nauðsynlegrar starf-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.