Kirkjuritið - 01.01.1942, Blaðsíða 39
Kirk.juritið.
Minningarorð
um séra Helga Hjálmarsson frá Grenjaðarstað.
F. 14. ágúst 1867. D. 17. marz 1941.
Hér stend eg sem gestur á Grenjaðar hól,
þá gengin til vesturs er lækkuð sól,
og horfi á ið forna höfuðból
með hólmum og runnum og engjum
og Laxár leikandi strengjum.
En sorg er að heyra í sumarfugls raust,
því sígur að vetri og komið er haust.
Þá harðnar um vorsins vina traust,
— þeir vængjum til suðurs beita,
og mildari landa leita.
Og staðurinn hnípir með haustsvip á brá
frá há-brúnum fjallsins og norður að á.
í bragði hans flestu má breytingu sjá
frá betri og auðugri dögum
í minningum, minjum og sögum.
Hve oft var eg staddur hér áður fyr,
er opnar stóðu mér vinar dyr,
því hingað gaf huganum blásandi byr,
þá braut fyrir lendingum öðrum,
og áfátt var árum og fjöðrum.
Og nú, er eg stíg hér um stéttir og hlað,
eg stórmennis saknia og vinar í stað,
af einlægni er hjörð sína blessaði og bað
um björg fyrir ríka og snauða
til líknar í lífi og dauða.