Kirkjuritið - 01.01.1942, Blaðsíða 55
Kirkjuritið. Aðalfundur Prestafélags íslands.
49
stjórninni höfSu verið falin á síðasta aðalfundi, og siðar skyldi
raeða á fundinum. Codex etliicus félagsins hafði verið prentaður,
og var útbýtt nieðal fundarmanna. í upphafi skýrslu sinnar mint-
ist hann látinna starfsbræðra, þeirra séra P. Helga Hjálmarsson-
ar, féhirðis félagsins, séra Magnúsar Helgasonar skólastjóra og
séra Tryggva H. Kvarans, en þeir höfðu allir látist á félagsár-
inu. Lauk form. máli sínu með hvatningarorðum til félagsmanna.
Ársr 'k ' Formaður las reikning félagsins og skýrði hann.
S ' Urðu um reikninginn allmiklar umræður, og
var að þeim loknum samþykt fundarályktun þess efnis, að fé-
•agsstjórn skuli semja um fullnaðargreiðslu á skuldum ýmissa
télagsmanna, svo að þær megi liverfa úr sögunni. í umræðunum
var á það bent, að svo mikið hefði félagið unnið til hagsbóta
Pi'estasléttinni, að liún ætti að efla hag þess sem bezt.
itf .e ... , . í ársskýrslu sinni hafði formaður bent á erfið-
fitsins o fl leika þa, sem oll bokautgafa er jiu hað, vegna
síhækkandi kostnaðar. Koma þeir erfiðleikar
ekki sízt niður á Kirkjuritinu. Eftir nokkurar umræður var
samþykt að fela félagsstjórninni að hækka verð Kirkjuritsins,
eftir því sem þurfa þætti, en minka það ella.
Þá urðu á fundinum nokkurar umræður um ýms útgáfumál
ónnur, þar á meðal útgáfu nýrra prestahugvekna. Taldi for-
niaður rétt, að það verk yrði hafið sem fyrst. Séra Helgi Sveins-
son hreyfði þeirri hugmynd, að komið yrði á fót bókaútgáfu-
félagi fyrir kirkjuna með líku sniði og ýms slík félög, er starfað
hafa hér á landi siðari árin.
Áukaverk presta Miklar umræður fóru fram um aukaverk presta,
og voru þeir málshefjendur séra Árelíus Niels-
s°n og séra Einar Guðnason í Reykholti. Lauk þeim umræðum
a síðara fundardegi.
Kirkjuj,ing Lagt var fyrir fnndinn á fyrra fundardegi
frumvarp til laga um kirkjuþing fyrir hina ís-
lenzku þjóðkirkju, og hafði dr. theol. Magnús Jónsson prófessor
dutt það frumvarp á Alþingi, en það varð ekki útrætt þar að
hessu sinni. Prestafélagsfundurinn kaus þessa menn i nefnd til
a® fjalla um málið: Sigurgeir Sigurðsson biskup, próf. Magnús
Jónsson, Friðrik J. Rafnar vígslubiskup, Sveinbjörn Högnason
Prófast og Hálfdan Helgason prófast. Á síðara fundardegi skil-
a®i nefndin áliti sínu um málið, og voru nefndarmenn sammála
um afgreiðslu þess. Tillaga nefndarinnar um málið var síðan
saiuþykt í einu liljóði eftir nokkurar umræður. Er það mjög
Sa®a tillagan að efni til, er samþykt var síðan á almenna kirkju-