Kirkjuritið - 01.01.1942, Blaðsíða 62
56
Fréttir.
Janúar.
Lætur söngmálastjóri mikið af dugnaði organistans, prófasts-
frúar Þórliildar Þorsteinsdóttur, og einlægum áhuga og dugnaði
söngflokksins og mikilli rausn þeirra prófastslijóna þar á Breiða-
bólsstað.
Þetta eru fyrstu sveitakirkjukórarnir, sem söngmálastjóri gengst
fyrir, að stofnaðar séu. — Nú seinni partinn i febrúar og fram i
marsmánuð hefir söngmálastjóri námskeið með hinum nýja
Laugarnesskirkjukór hér í Reykjavik og auk þess kennir hann
stöðugt, þegar hann er hér í bænum, guðfræðinemum Háskólans
tón og kirkjusöng.
KIRKJURITIÐ
þakkar öllum lesendum sínum vinsemd og stuðning á liðnum
árum. Verð þess hlýtur nú að hækka um 2 kr. árg. upp í 8 kr.,
og er það þó engan veginn full verðlagsuppbót. En því er treyst,
að kaupendunum fjölgi að mun á þessu ári, svo að ritið geti
borið sig og unnið betur það hlutverk, sem því er ætlað að
vinna með þjóðinni. í þeim tilgangi eru kaupendur ritsins vin-
samlega beðnir að senda hjálagt bréf vinum sínum eða kunn-
ingjum, er þeir telja líklega til að vilja sinna þeim kostakjörum,
sem Prestafélag íslands býður þeim. Þeir, sem þegar eru kaup-
endur, geta fengið ókeypis einstök hefti ritsins til þess að fylla
eldri árganga, og vitji þeirra þá til afgreiðslunnar.
Næsta liefti, marzheftið, er væntanlegt innan skamms.
Ritið mun koma út eins og áður 9—10 sinnum á ári, alla mán-
uði ársins, nema ágúst og sept., um 24 arkir alls. Verð 8 kr. árg.
Afgreiðslu og innheimtu annast frú Elísabet Jónsdóttir, Hring-
braut 144, sími 4776, Reykjavík.
SÉRA ÞORSTEINN ÁSTRÁÐSSON
fyrrum prestur að Staðarhrauni, andaðist 17. marz. Hans verð-
ur síðar minst hér í ritinu.